Fótbolti

Jón Dagur skoraði tvö og lagði upp eitt í langþráðum sigri Leuven

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson var allt í öllu í sigri OH Leuven í kvöld.
Jón Dagur Þorsteinsson var allt í öllu í sigri OH Leuven í kvöld. Twitter@OHLeuven

Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var allt í öllu í liði OH Leuven er liðið vann langþráðan 4-2 sigur gegn Waregem í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Jón Dagur tvöfaldaði forystu Leuven á 41. mínútu eftir að Siebe Schrijvers hafði komið liðinu yfir rúmum tíu mínútum áður. Hann var svo aftur á ferðinni þegar hann lagði upp þriðja mark liðsins stuttu fyrir hálfleikshléið og staðan var því 3-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Jón Dagur var alls ekki hættur og hann negldi síðasta naglann í kistu gestanna þegar hann breytti stöðunni í 4-1 með marki úr vítaspyrnu á 76. mínútu, þremur mínútum eftir að gestirnir höfðu minnkað muninn. Gestirnir náðu þó að klóra í bakkann stuttu síðar, en niðurstaðan varð nokkuð öruggu 4-2 sigur OH Leuven.

Jón Dagur og félagar sitja nú í 11. sæti deildarinnar með 36 stig eftir 28 leiki, en liðið var án sigurs í seinustu sjö deildarleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×