Raftónlist og pólskur matur
Fjölbreyttur hópur listamanna kemur fram á Super Soaker, sem sérhæfa sig í raftónlist og hvers kyns afbrigðum hennar. Einnig verður sérstakt pólskt matar POP-up á efri hæð Priksins í höndum matarlista-hópsins BABCIA, sem þær Kosmonatka og Pola Sutryk fara fyrir.
Af tónlistarfólkii ber að nefna BART, SODDILL, og RONJA, en þá einna helst tónlistarmanninn UMRU.

Vann með Charli XCX
„UMRU kom eins og stormsveipur inn á plötusnúða og raftónlistarskapara senuna, en hann var aðeins 17 ára þegar hann kom að plötunni POP 2 með tónlistarkonunni Charli XCX. Hann hefur einnig unnið með Yung Kayo og Tommy Cash.
UMRU er hreinn hvalreki fyrir unnendur raftónlistar og framúrstefnu popptónlistar,“
segir í fréttatilkynningu.
Pussy Riot meðlimur með sóló verkefni
Á laugardagskvöldinu verður einnig mikið um að vera en tónlistarkonan og Pussy Riot meðlimurinn Diana er í hópi tónlistarfólks sem kemur fram þá.
Diana hefur verið virkur meðlimur Pussy Riot í mörg ár og kom nýlega fram á tveimur tónleikum með sveitinni hér á Íslandi sem var hluti af mótmæla tónleikaferðalagi þeirra, Riot Days. Á laugardag mun hún svo koma fram undir sólóverkefni sínu, Rosemary Loves a Blackberry, í fyrsta sinn í Reykjavík.
Auk hennar koma fram MC Myasnoi, Flaaryr og Knackered.

Post-dreifing, sem stendur á bak við Super Soaker, er listasamlag sem kemur að útgáfu og ýmsum viðburðum og hefur vakið athygli undanfarin ár hér í Reykjavík.
„Þau misstu nýlega rýmið sitt í Skerjafirði sem borgin hafði skaffað þeim, vegna kvartana frá nábúum, og var það mjög umdeild ákvörðun að úthýsa þeim. Furðulegt í samhengi við að nýlega endurnýjar borgin ekki samstarf sitt við FÚSK, sjálfbæra listamenn sem höfðu komið sér fyrir í Gufunesi og héldu þar gríðarlegt magn af frábærum viðburðum,“ segir Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, eigandi Priksins.