Persónuleg reynsla af gamlárskvöldi
„Textinn við lagið kom á einhverjum 10-15 mínútum og held ég að ég hafi aldrei átt svona rosalega auðvelt með að klára texta,“ segir Júlí Heiðar um ferli lagsins í samtali við blaðamann.

Lagið er eftir Frank Loesser og er frá árinu 1947. Þekktasti útgáfan er líklegast með Ellu Fitzgerald frá 1960 en svo gerðu þau Zooey Deschanel & Joseph Gordon-Levitt útgáfu 2012 sem fékk mikla athygli.
„Hugmyndin er ekki alveg sú sama og í enska textanum af því að mig langaði að skrifa textann út frá sögu úr mínu lífi frá gamlárskvöldinu 2020/2021,“ segir Júlí Heiðar.
Hér má heyra lagið:
„Ógeðslega rómantískur“
„Þetta voru fyrstu áramótin sem við Dísa vorum að hittast og þar sem ég er ógeðslega rómantískur þá sá ég fyrir mér að ná að kyssa hana á miðnætti.
Sambandið okkar var ekki komið neitt mjög langt svo ég var í Þorlákshöfn hjá foreldrum mínum og hún í Fossvoginum hjá foreldrum sínum.“
Júlí Heiðar segist hafa viljað klára Skaupið með fjölskyldunni sinni og ætlaði svo að bruna til Reykjavíkur til að ná kossinum.
„Þetta þýddi að ég hafði 40 mínútur og varð að vera helvíti snöggur. Ég var kominn til Reykjavíkur tíu mínútur í tólf og eina mínútu fyrir tólf keyrði ég inn í götuna hennar, þá var ég búinn að fara yfir á þremur rauðum ljósum.
Ég hljóp upp að hurðinni og bankaði en það heyrði enginn í bankinu út af flugeldunum.
Til að toppa það sendi Dísa mér líka skilaboð akkúrat á meðan ég var að banka og sagði mér að hún væri að svæfa son sinn.“
Þrátt fyrir misheppnaða tilraun á miðnæturkossi átti þetta ekki eftir að hafa áhrif á blómstrandi ást parsins.
„Þetta var auðvitað ekkert eðlilega svekkjandi en ég labbaði út í bíl og hugsaði með mér að á næsta ári myndi ég ná miðnæturkossinum, sem svo gerðist.“
Nútímalegt en með gamla hjartað
Lagið var unnið í samvinnu við Fannar Frey Magnússon.
„Hann sá um upptökur, að spila á hljóðfæri, hljóðblöndun og hljóðjöfnun og það undirstrikar enn eina ferðina hvað hann er frábær tónlistarmaður.
Saman unnum við hugmyndina af hljóðheiminum, við vildum færa það í meiri nútímabúning en samt ekki missa gamla hjartað í laginu og ég held að það hafi tekist ágætlega,“
segir Júlí að lokum.
Júlí og Þórdís voru gestir í Veislunni hjá Gústa B í gær þar sem þau ræddu um lagið, ástina og lífið. Viðtalið má heyra í spilaranum hér að neðan og byrjar á mínútu 1:27:10.