Enski boltinn

Segir að eig­endunum sé sama um fé­lagið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Annar hluti viðtals Piers Morgan við Cristiano Ronaldo var birtur í kvöld. Þar sagði Ronaldo allavega einn hlut sem flest allt stuðningsfólk Man United hefur vitað í fleiri ár.
Annar hluti viðtals Piers Morgan við Cristiano Ronaldo var birtur í kvöld. Þar sagði Ronaldo allavega einn hlut sem flest allt stuðningsfólk Man United hefur vitað í fleiri ár. AP Photo/Jon Super

Annar hluti af drottningarviðtali Piers Morgan við Cristiano Ronaldo var birtur í kvöld. Þar segir Ronaldo að Glazer-fjölskyldunni, eigendum Manchester United, sé sama um félagið. Þá gagnrýnir hann Gary Neville og aðra fyrrum leikmenn Manchester United.

Fyrri hluti viðtalsins birtist í gærkvöld en þá sagði Ronaldo að hann væri enga virðingu fyrir Erik ten Hag, þjálfara Man United þar sem það væri ljóst að þjálfarinn bæri enga virðingu fyrir honum. Sami þjálfari og lét Ronaldo bera fyrirliðabandið eftir að hann neitaði að koma inn á gegn Tottenham Hotspur og strunsaði inn í klefa skömmu fyrir leikslok þegar lið hans var að vinna 2-0 sigur.

Í kvöld fékk Glazer-fjölskyldan að finna fyrir því. Flest stuðningsfólk Man United hefur lengi vel viljað fjölskylduna á bak og burt þar sem hún hefur skuldsett félagið og hefur aðeins sogið fjármagn úr félaginu ólíkt öðrum eigendum stórliða á Englandi eða víðar um Evrópu.

Ronaldo ákvað nú að láta eigendurna, sem samþykktu að borga honum ríflega hálfa milljón punda á viku, heyra það. „Þeim er alveg sama um félagið, þeim er sama um íþróttaina,“ sagði hinn 37 ára gamli Portúgali áður en hann ásakaði Glazer-fjölskylduna um að hugsa eingöngu um hversu vel sé hægt að markaðssetja félagið frekar en að ná árangri inn á vellinum.

Ronaldo áskaði Gary Neville, fyrrum samherja sinn og núverandi sparkspeking, um að gagnrýna sig til að fá athygli.

„Það er auðvelt að gagnrýna, ég veit ekki hvort þú verðir að gagnrýna í sjónvarpi til að verða frægari. Ég held þeir nýti sér nafn mitt til að fá meiri athygli. Þeir eru ekki heimskir. Ég er með flesta fylgjendur [e. Followers] í heiminum, það er ekki tilviljun að þeir noti nafn mitt.“

„Fólk getur haft þeirra eigin skoðanir en það veit ekki hvað gengur á, hvorki inn á Carrington [æfingasvæði Man United] eða í einkalífi mínu.“

„Þeir eru ekki vinir mínir,“ sagði Ronaldi jafnframt um fyrrum liðsfélaga sem hafa gagnrýnt hann áður en hann hrósaði Rio Ferdinand og Roy Keane.

„Þeir eru góðir náungar. Ekki aðeins af því þeir tala vel um mig heldur voru þeir leikmenn. Þeir vita hvernig leikmenn hugsa og haga sér.“


Tengdar fréttir

Segir að allir muni styðja Ten Hag nema Ferdinand, Keane og Evra

Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir að Cristiano Ronaldo hafi skorað sjálfsmark með viðtali sínu við Piers Morgan. Hann segir að nær allir stuðningsmenn United myndi styðja Erik ten Hag, knattspyrnustjóra liðsins, frekar en Ronaldo.

Reiðir og sárir út í Ronaldo

Ráðamenn og leikmenn Manchester United eru reiðir og telja sig illa svikna vegna viðtalsins sem Cristiano Ronaldo fór í. Brot úr viðtalinu fóru að birtast skömmu eftir leik við Fulham í gær sem Ronaldo sagðist of veikur til að ferðast í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×