Tónlist

Vill breyta mjög ljótri lífsreynslu í eitthvað fallegt

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Salka Valsdóttir notast við listamannsnafnið neonme. Hún var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið If I Remember sem fjallar um erfiða lífsreynslu.
Salka Valsdóttir notast við listamannsnafnið neonme. Hún var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið If I Remember sem fjallar um erfiða lífsreynslu. Stilla úr myndbandi

Tónlistarkonan neonme heitir réttu nafni Salka Valsdóttir og hefur komið víða fram í heimi tónlistarinnar sem meðlimur hljómsveitanna Reykjavíkurdætra og Cyber. Það er stór dagur í dag hjá neonme, sem var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið If I remember sem hún frumsýnir hér á Lífinu á Vísi. Hún mun jafnframt spila sitt fyrsta sóló gigg í kvöld.

Hér má sjá myndbandið:

If I remember er önnur smáskífa neonme af tilvonandi plötu hennar premiere. Myndbandið var unnið í samstarfi við Blair Alexander, kærasta Sölku og er það metnaðarfyllsta sem Salka hefur tekið sér fyrir hendur hingað til. Blaðamaður tók púlsinn á Sölku eða neonme og fékk að heyra nánar frá þessu persónulega ferli að baki laginu.

Stilla úr myndbandi

Að breyta einhverju mjög ljótu í eitthvað fallegt

„Ég skrifaði lagið If I remember á seinasta ári eftir að hafa upplifað líkamlega triggera í fyrsta skipti vegna hrottalegs kynferðisofbeldis sem ég var beitt sem ung kona. Áður en að triggerarnir komu upp hafði ég bælt viðburðinn gífurlega og nánast ekki sagt neinum frá svo þetta var verulegt áfall líkamlega og andlega þegar þetta bankaði allt í einu upp á og minnti á sig,“ segir Salka. 

Það sem henni þótti mjög sérstakt var að mikið af minningunum sem komu upp um ofbeldið á þessum tíma voru fallegar.

„Ég mundi eftir góðri lykt af gróðri, birtunni sem skein inn um gluggann, hvernig sólsetrið var, hvað trén voru falleg og svo framvegis. Ég held að þetta hafi verið tilraun til þess að bæla niður sársaukan sem fylgdi ofbeldinu, nánast eins og að ef ég gæti beint allri athyglinni minni að því sem var fallegt við þetta kvöld þá þyrfti ég ekki að horfast í augu við það ljóta.

Lagið varð því nokkurs konar tilraun til þess að horfast í augu við þennan hluta af sjálfri mér og breyta einhverju mjög ljótu í eitthvað fallegt.“

Fantasíu veröld

Salka og Blair Alexander voru með ákveðna sýn í huga fyrir myndbandið.

„Okkur langaði að skapa heim sem væri mjög persónulegur og virkaði eins og innsýn inn í hugarheim flytjandans. Myndbandið er aðeins ein taka eða one take og tvær mínútur og fimmtán sekúndur, en á þessum stutta tíma ferðumst við í gegnum ólíkar árstíðir og mjög ólíkar tilfinningar.

Til þess að skapa þennan heim fengum við Ilmi Stefánsdóttur leikmyndahönnuð og mömmu mína til þess að breyta heimili mínu í fantasíu veröld. Hún umturnaði húsinu með yfir 40 gervi plöntum, 100 kílóum af gervi snjó og alls kyns glingri og gersemum. 

Niðurstaðan er mögnuð finnst mér, þótt ég segi sjálf frá, og er ég virkilega stolt af myndbandinu.“

„Mikil tónlistarveisla“

Salka er sem áður segir að spila sitt fyrsta sóló gigg í dag og hlakkar hún mikið til.

„Ég er virkilega spennt fyrir því að spila þessa tónlist fyrir framan áhorfendur. Þetta er mjög ólíkt því sem ég er vön að gera á sviði þar sem tónlistin krefst mun meiri berskjöldunar en tónlist Reykjavíkurdætra og CYBER.

Ég er vön því að vera í frekar miklum karakter á sviði en í þessu verkefni þýðir það ekkert.

Einlægnin er eiginlega eina rökrétta nálgunin á þessa tónlist og það getur verið mjög krefjandi að leyfa sér að vera einlægur fyrir framan fullan sal af fólki. 

Ég er líka í fyrsta sinn að hljómsveitarstýra og er með sturlaða hljóðfæraleikara með mér á sviði. Þau eru Sigurlaug Gísladóttir, eða Mr. Silla, á gítar og bakröddum, Tumi Árnason á saxófón og Bridget Ferril á hörpu.“

Þegar Salka kemur fram sem neonme segir hún ekki þýða að fara í karakter og þarf að leyfa einlægninni að skína.Stilla úr myndbandi

Tónleikarnir fara fram í Iðnó í kvöld klukkan 21:10.

„Húsið opnar klukkan 20:00 og verða viðburðir alveg til klukkan 01:00. Aðrir sem spila á tónleikunum eru JFDR, Sóley, Sin Fang, Kónguló og margir fleiri svo þetta verður algjör tónlistarveisla,“ segir Salka að lokum.


Tengdar fréttir

Frumsýnir „The Flower Phallus“ á Vísi á morgun

Tónlistarkonan Salka Valsdóttir gengur undir listamannsnafninu neonme í nýju tónlistarverkefni. Á morgun sendir hún frá sér sitt fyrsta lag sem ber nafnið The Flower Phallus og mun hún frumsýna tónlistarmyndband sitt hér á Lífinu hjá Vísi klukkan 11:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×