Tónlist

JFDR skrifar undir samning við breskt útgáfufyrirtæki

Elísabet Hanna skrifar
Jófríður er spennt fyrir samstarfinu.
Jófríður er spennt fyrir samstarfinu. Dóra Dúna

Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, einnig þekkt sem JFDR var að skrifa undir samning við breska útgáfufyrirtækið Houndstooth. Hún var einnig að gefa út smáskífuna „The Orchid“ en laginu fylgir nýtt myndband.

„Ég þekki labelið Houndstooth í gegnum Paul Corley sem mixaði síðustu plötuna mína. Þeir höfðu lýst áhuga á því að vinna saman í kringum þá plötu en ég ákvað að gefa hana frekar út sjálf. 

Svo núna þegar þessi plata var tilbúin, fyrr á árinu, langaði mig að prófa að vinna með labeli aftur í fyrsta sinn í langan tíma og þá varð Houndstooth fyrir valinu,“ segir Jófríður í samtali við Vísi.

Aðspurð hvernig tilfinningu hún hafi fyrir samstarfinu er Jófríður spennt fyrir framhaldinu: „Eins og ég sagði þá hef ég ekki unnið með labeli í langan tíma því það er svo margt sem maður getur gert sjálfur og það skiptir miklu máli að hafa góðan samning og góða tilfinningu fyrir fólkinu sem maður vinnur með í þessum efnum. Þeir hjá Houndstooth eru með hjartað á réttum stað og ég hlakka til að vinna með þeim.“

Hugsar mikið um nýtt upphaf

Leikstjóri myndbandsins er Joseph Burgess. Jófríður segir lagið gefa til kynna hvað koma skal í tónlistinni. „Ég hugsa um lögin mín dálítið eins og orkideur,“ segir Jófríður. 

Verið í tónlist frá fjórtán ára aldri

Tónlistin hefur átt hug hennar síðan hún var fjórtán ára gömul og hefur hún gefið úr þó nokkrar plötur síðan þá, bæði sem meðlimur hljómsveitanna Pascal Pinon og Samaris og tvær breiðskífur sem JFDR. Einnig hefur hún verið í samstarfi með öðrum tónlistarmönnum. Þar má helst nefna Ólaf Arnalds og Damien Rice. 

Þess má til gamans geta að tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir nefndi Jófríði nýlega í viðtali sem einstakling sem veitir henni innblástur. 

Plata á næsta ári

Það er margt framundan en Jófríður stundar nám ásamt því að vinna tónlistartengt verkefni. „Ég er að vinna í tónlist fyrir sjónvarpsefni um þessar mundir, tvö verkefni sem eru alveg að klárast, svo er ég í Listaháskólanum að læra tónsmíðar og stefni að því að gefa út nýja plötu á næsta ári.“


Tengdar fréttir

Árný Margrét frumsýnir tónlistarmyndband: Myrkur og vel valin augnablik

Rísandi stjarnan Árný Margrét frumsýnir tónlistarmyndband við lagið The world is between us hér á Lífinu á Vísi. Myndbandinu er leikstýrt af Erlendi Sveinssyni en það er tekið á 16 millimetra filmu og eyddi tökuhópurinn fimm dögum fyrir vestan á Ísafirði, heimabæ Árnýjar, að skjóta það.

Fagnar plötuútgáfu með tónleikum í Hörpu: „Platan Drown to Die a Little varð til samhliða heilsufarslegu ferðalagi“

Tónlistarkonan Stína Ágústsdóttir fagnar útgáfu sinnar fjórðu sólóplötu, Drown to Die a Little, með tónleikum í Kaldalóni í Hörpu á sunnudaginn næstkomandi, 27. mars. Síðustu verk Stínu, Jazz á íslensku og The Whale hlutu bæði tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna og hafa fengið jákvæða dóma á Íslandi sem og á Norðurlöndunum. Blaðamaður spjallaði við Stínu um væntanlega tónleika.

„Ég segi bara húrra Ísland“

Gengið hefur verið frá sölu á íslenska útgáfufyrirtækinu Öldu Music til Universal Music/InGrooves, stærsta tónlistarfyrirtækis heims. Alda er rétthafi að stærstum hluta allrar íslenskrar tónlistar sem gefin hefur verið út.

Skrifstofu Sony á Íslandi lokað

Skrifstofa Sony Music á Íslandi hættir formlega störfum þann 31. október næstkomandi vegna stefnubreytingar hjá Sony Music Entertainment. Dreifing á íslenskum útgáfum verður þá í höndum Sony í Kaupmannahöfn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×