Tónlist

„Nóg af grúvi og góðu skapi“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sara Mjöll Magnúsdóttir stendur fyrir tónleikum á Skuggabaldri annað kvöld.
Sara Mjöll Magnúsdóttir stendur fyrir tónleikum á Skuggabaldri annað kvöld. Daníel Starrason

Sara Mjöll Magnúsdóttir er jazz tónlistarkona, píanó- og hammond-orgel leikari sem stendur fyrir tónleikum á morgun, 28. júlí, á Skuggabaldri. Sara Mjöll stundar nám við William Paterson University og er búin að búa í New Jersey í Bandaríkjunum í nokkur ár. 

Í háskólanum leggur Sara stund á jazz tónlistarnám og lærir hjá einum besta hammond leikara í New York en samkvæmt henni er ekki mjög algengt að sjá Hammond leikara hér á Íslandi.

„Hammond hljóðfærið er frábrugðið píanói og í stað þess að hafa bara eitt hljómborð eru tvö hljómborð sem spilað er á og svo er spilað á fótbassa með fótunum,“ segir Sara og bætir við: „Það er einnig frábrugðið hefðbundnum kirkjuorgelum á þann hátt að það hefur mýkri tón, orgelið hefur meiri drífandi bassa sem líkist kontrabassa og hentar því vel í jazz tónlist. Það hefur einnig mikið verið notað í allskyns popp og soul dægurtónlist í gegnum tíðina sem og gospel tónlist.“

Á morgun heldur Sara sína fyrstu Hammond orgel tónleika hérlendis en hún hefur verið í jazz senunni á Íslandi um árabil sem píanóleikari. Sem dæmi hefur hún komið fram á Jazzhátíð Reykjavíkur tvisvar og spilað á öllum helstu jazz stöðum Reykjavíkurborgar. Einnig hefur hún starfað sem tónskáld og samið tónlist fyrir Stórsveit Reykjavíkur. Blaðamaður tók púlsinn á Söru og fékk að heyra meira um hennar tónlist og líf.

Hvenær byrjaðir þú í tónlist?

Ég byrjaði í tónlist snemma í grunnskóla og var lengst í klassísku píanónámi. Jazz og blús var samt alltaf tónlistin sem heillaði mig, ég flutti til Reykjavíkur 16 ára og fór í jazz píanónám í FÍH. Smám saman upp úr tvítugu fór ég að spila gigg hér og þar og snjóboltinn hefur rúllað síðan.

Hvað heillaði þig við Hammond orgelið?

Grúvið og sálin heillaði mig við Hammond orgelið. Gamla soundið úr gospel og soul tónlist í bland við jazz með gangandi bassa. Það er svo mennskt sound í Hammond orgelinu og mikil sál. 

Ég fékk svo tækifæri til að læra hjá einum helsta Hammond leikara New York borgar, Mike LeDonne, svo þetta hljóðfæri hefur átt hug minn allan nýlega.

Hvernig hefur þú þróast sem tónlistarkona á undanförnum árum?

Ég hef búið í Bandaríkjunum seinustu ár og verið í háskólanámi í jazztónlist. Ég bý rétt fyrir utan New York, og borgin iðar af allri mögulegri tónlist. 

New York er heillandi kaós þar sem allt er í boði. Ég hef lært ótrúlega margt og það hefur verið erfitt en gefandi. 

Áður en ég fór til Bandaríkjanna hafði ég í nokkur ár starfað við að spila ýmis jazz gigg í Reykjavík og kenna á píanó.

Seinustu ár hef ég á margan hátt verið að finna aftur minn kjarna sem tónlistarkona. Ég þurfti að finna það aftur hvað mér finnst skemmtilegast að spila, og leitast við að spila einmitt það. Að finna tæra spilagleði er dýrmætt og mikilvægt að miðla því sem performer

Það er svo miklu skemmtilegra að hlusta á einhvern sem er að njóta sín. 

Ég hef því verið að einbeita mér undanfarið að tónlistinni sem fékk mig til að vilja spila jazz sem unglingur, sem er meira gamaldags jazz. Hammondið passar þar vel inn í, að spila á Hammond orgelið er algjörlega ég.

Önnur ástríða mín er að útsetja og semja fyrir stórsveitir (e. big band), sem ég hef einnig verið að einbeita mér að undanfarin misseri.

Hvað finnst þér skemmtilegast við tónlistina?

Mér finnst skemmtilegast við tónlistina að spila með öðrum og að skapa eitthvað fallegt og spennandi í sameiningu. 

Að fá að njóta augnabliksins í tónlistinni upp á sviði með góðum vinum og meðspilurum eru algjör forréttindi.

Að lokum segist Sara virkilega spennt fyrir morgundeginum.

Þetta eru mínir fyrstu Hammond tríó tónleikar á Íslandi svo ég er virkilega spennt fyrir þeim. Við munum spila alls kyns jazz, blús og soul tónlist. 

Það verður nóg af grúvi og góðu skapi. 

Með mér verða Hróðmar Sigurðsson á gítar og Óskar Kjartansson á trommur. Ég hvet svo alla til þess að fara og hlusta á jazz sem oftast á Skuggabaldri. Frábær jazztónleikastaður við Austurvöll sem hefur skapað alveg einstaka stemningu í miðbænum, svona staður er virkilega mikilvægur fyrir jazz senuna á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×