Sport

Guðlaug Edda náði næstbesta árangri sínum 11 mánuðum eftir aðgerð

Hjörvar Ólafsson skrifar
Það var langþráð stund hjá Guðlaugu Eddu Hannesdóttur í gær. 
Það var langþráð stund hjá Guðlaugu Eddu Hannesdóttur í gær.  Mynd/aðend

Guðlaug Edda Hannesdóttir keppti í gær á sínu fyrsta móti í heimsbikarnum síðan árið 2020 þegar hún hafnaði í 16. sæti á móti í mótaröðinni sem fram fór í Arzachena á Ítalíu

Guðlaug Edda var þarna að snúa til baka akkúrat 11 mánuðum eftir að hafa undirgengist stóra aðgerð vegna mjaðmarmeiðsla sinna. 

Um var að ræða sprettþraut sem innihélt 750 metra sjósund, 20 kílómetra hjólreiðar og 5 kílómetra hlaup. 

Guðlaug Edda hóf keppni númer 47 af 55 keppendum en raðað var eftir styrkleika. Hún synti mjög vel og var framarlega eftir sundkeppnina. 

Þá hjólaði Guðlaug Edda skynsamlega og hélt sér í fremsta hópnum. Guðlaug Edda kom svo í mark eftir hlaupið 65 sekúndum á eftir Söndru Dodet frá Frakklandi sem vann á tímanum 60 mínútum og 31 sekúndum. 

Þetta er næst besti árangur Guðlaugar Eddu í heimsbikarnum. Þetta heimsbikarmót var fyrsta mótið sem telur til stiga fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í París í Frakklandi árið 2024.

„Ég er á mjög góðum stað, vel undirbúin, líður vel, er heilbrigð og hamingjusöm Það er mjög einstakt að fá tækifæri til að keppa aftur á hæsta leveli í þríþraut, en það tækifæri fékk ég frá YKKUR öllum sem hjálpuðum við fjármögnunina á aðgerðinni. 

Án ykkar hefði þetta ekki verið mögulegt og ég væri enn meidd, og ég fer alltaf að gráta þegar ég hugsa út í það," sagði Guðlaug Edda hrærð í facebook-færslu sinni daginn fyrir keppnina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×