Tónlist

Frumsýndu nýja búninga á fyrstu æfingunni fyrir Eurovision

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sigga, Elín og Beta Eyþórsdættur eiga framlag Íslendinga til Eurovision í ár. Með þeim á sviðinu verður bróðir þeirra Eyþór. Hér má sjá búninga þeirra í undankeppninni á Íslandi.
Sigga, Elín og Beta Eyþórsdættur eiga framlag Íslendinga til Eurovision í ár. Með þeim á sviðinu verður bróðir þeirra Eyþór. Hér má sjá búninga þeirra í undankeppninni á Íslandi. Vísir/Hulda Margrét Óladóttir

Systur, framlag Íslands til Eurovision í ár, tóku sína fyrstu æfingu á sviðinu í dag. Íslenski hópurinn flaug út aðfaranótt laugardags með systkinin Eyþór, Elínu, Sigríði og Elísabetu í fararbroddi.

Elín, Sigga og Beta sýndu nýju búningana sína á æfingunni og einnig sviðsmyndina. Ljóst er að áhorfendur munu fá að sjá fallega litadýrð á skjánum fyrir aftan systkinin á sviðinu. Lay Low höfundur lagsins Með hækkandi sól sat í salnum og fylgdist með ásamt leikstjóranum, stílistanum og fleirum úr íslenska hópnum.

Samkvæmt upplýsingum frá hópnum sem fylgir systkinunum úti í Tórínó gekk æfingin þeirra mjög vel. 

„Frábær fyrsta æfing,“ sagði Rúnar Freyr Gíslason orðrétt eftir daginn. 

Systurnar birtu mynd af búningunum sínum á Instagram. Þar segjast þær elska Ítalíu og finna vel fyrir ástinni. Ísland keppir á fyrra undankvöldi Eurovision, þriðjudaginn 10. maí. 

Í myndaalbúminu hér fyrir neðan má sjá sviðsmyndina betur.


Tengdar fréttir

Dansgleðin eykst í takt við hækkandi sól

Tónlistarmaðurinn Farruko trónir á toppi íslenska listans þessa vikuna með lagið Pepas. Lagið kom út síðastliðið sumar og er skothelldur danssmellur sem flæðir vel og býr yfir kröftugu viðlagi sem er næstum ómögulegt að dansa ekki við.

Beta klæddist ACDC bol á sviðinu í Madríd

Hljómsveitin Systur, skipuð af Eyþórsdætrunum Elínu, Sigríði og Elísabetu, steig á svið á Eurovision tónleikum sem haldnir voru í Madríd á Spáni.

Með hækkandi sól klífur listann

Nú styttist óðfluga í Eurovision og íslenski listinn fylgist spenntur með á hliðarlínunni. Framlag okkar Íslendinga, lagið Með hækkandi sól, hækkar sig um tólf sæti á milli vikna og situr nú í sjötta sæti íslenska listans. 

Helmingurinn ánægður með framlagið til Eurovision

Helmingur Íslendinga segist ánægður með framlag okkar til Eurovision þetta árið. Það er samkvæmt könnum sem Prósent framkvæmdi nýverið en einungis tuttugu prósent sögðu óánægð.

Breyta búningunum fyrir Eurovision en ætla ekki að dansa

Elín og Beta Eyþórsdætur ræddu sigurinn á Söngvakeppninni í Bítinu á Bylgjunni fyrr í dag. Þær eru á fullu að skipuleggja og æfa sig og ætla að gefa út nýja tónlist saman áður en þær fara út og eru því á leið í hljóðverið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×