Tónlist

Saga palestínskrar fjölskyldu á Íslandi sem býr við endalausa óvissu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stilla úr tónlistarmyndbandinu við lagið TAL 11 sem hljómsveitin BSÍ sendi frá sér í dag.
Stilla úr tónlistarmyndbandinu við lagið TAL 11 sem hljómsveitin BSÍ sendi frá sér í dag. Aðsend

Hljómsveitin BSÍ sendir frá nýtt myndband við lagið þeirra TAL 11. Leikstjóri myndbandsins er Erlendur Sveinsson en lagið er af fyrstu breiðskífunni BSÍ sem kom út í fyrra. Myndbandið lokar þar með hringnum í kringum útgáfu plötunnar þeirra „Stundum þunglynd ... en alltaf andfasísk“. Hér má sjá myndbandið:

Hversdagsleikinn í endalausri óvissu

Að sögn hljómsveitarmeðlima er þetta tónlistarmyndband eins konar heimildarmynd um fjölskyldu á Íslandi, þar sem fylgst er með þeim í einn dag í þeirra lífi. Þótt myndefnið sýni þau í hinum ýmsu áskorunum og gleðistundum hversdagslífsins eins og hver önnur íslensk fjölskylda stendur frammi fyrir, þá er eini munurinn sá að þessi fjölskylda býr við endalausa óvissu. 

Stilla úr umræddu tónlistarmyndbandi.Aðsend
„Fjölskyldan er flóttafólk frá Palestínu sem náði til Evrópu á litlum bát sem lenti við strendur Grikklands og vita nú ekki hvort umsókn þeirra um hæli verði samþykkt hér á Íslandi.“

„Á sama tíma mun Alþingi brátt taka fyrir og ræða nýtt frumvarp sem inniheldur breytingar á lögum um útlendinga. Þessar lagabreytingar, ef samþykktar, myndu skerða réttindi hælisleitenda og fólks á flótta enn meira en nú, eru taldar stangast á við grundvallarmannréttindi og þess vegna harðlega gagnrýndar af samtökum á borð við Rauða Krossinn, Amnesty International, No Borders og fleiri.“

Ef frumvarpið verður samþykkt á Alþingi, eiga fjölskyldur, eins og þessi í myndbandinu, minni von um að íslensk yfirvöld leyfi þeim að setjast hér að og byrja nýtt líf.

„Myndbandið lifir sem heimild um líf þeirra á Íslandi“

Leikstjórinn, Erlendur Sveinsson, er Fullbright styrkþegi sem útskrifaðist frá Columbia University í New York með MFA gráðu í leikstjórn árið 2018. 

Hann hefur leikstýrt tónleikamyndum og tónlistarmyndböndum fyrir marga íslenska tónlistarmenn á borð við GDRN, Aron Can, Vök, Birni, Bríeti, Gugusar, Árný Margréti og fleiri. Erlendur vinnur nú að sinni fyrstu leiknu kvikmynd í fullri lengd ásamt heimildarmynd um Litla Hraun.

„Á síðu sem heitir Refugees in Iceland komst ég í samband við Fathiu og Mohammed frá Palestínu sem búa í Grafarvoginum með þremur börnum. Þau tóku mér opnum örmum og eftir að við hittumst fyrst með túlk kom ég með myndavélina og fékk að fylgja þeim eftir. Úr varð myndband sem samanstendur af degi úr lífi þeirra á Íslandi,“ segir Erlendur um ferlið á bak við myndbandið. Hann bætir við:

„Það er óvíst hver staða þeirra verður í náinni framtíð, hvar þau munu búa o.sv.fr. En þetta myndband mun lifa sem heimild um líf þeirra hér á Íslandi. Ég er í reglulegu sambandi við Fathiu og fjölskyldu, börnin okkar leika sér saman og við höldum matarboð reglulega. Þeim líður vel á Íslandi og hér vilja þau vera.

Mér þykir ótrúlega vænt um þetta verkefni sem hefur gefið mér svo margt og ég er virkilega þakklátur fyrir að hafa fengið þetta tækifæri.“

Hljómsveitin BSÍ hefur verið að gera öfluga hluti í íslensku tónlistarlífi að undanförnu. Sveitin var tilnefnd til tveggja verðlauna á Hlustendaverðlaununum og er tilnefnd til þriggja verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum í kvöld.


Tengdar fréttir

Strand­­gestir í Vestur­bænum í stríði við einka­bílinn

Hljómsveitin BSÍ sem samanstendur af Juliusi Pollux Rothlaender og Sigurlaugu Thorarensen gefur í dag út sína fyrstu stóru plötu. Í rauninni eru þetta tvær plötur í einni, því hvor hlið plötunnar hefur að geyma sinn hljóðheim og standa þær báðar sem sér útgáfa, en saman endurspegla þær breytilegan hljóm dúósins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×