Tónlist

Samdi lagið sitjandi á gólfinu með opna hurð og í einum skó

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Söngkonan Tara Mobee var að senda frá sér lagið Carpool.
Söngkonan Tara Mobee var að senda frá sér lagið Carpool. Anna Margrét/Aðsend

Tónlistarkonan Tara Mobee sendi frá sér lagið Carpool á miðnætti í gær. Tara er með marga bolta á lofti um þessar mundir en lagið er hluti af EP plötu sem kemur út í sumar. Blaðamaður tók púlsinn á þessari söngkonu og fékk að heyra nánar um tónlistarlífið hennar.

Hér má heyra lagið af streymisveitunni Spotify:

Hvaðan sækir þú innblástur sem tónlistarkona?

Jiih, það er góð spurning. Það er kannski ekki eitthvað eitt svar til en ég ólst upp við að hlusta á allskonar tónlist. Frá íslenskri dægurlaga klassík í rokkóperur, sinfóníur og Celine Dion. Þetta spilaði held ég sterkt inn í þegar ég byrjaði að semja lög og útkoman hefur alltaf verið mitt heittelskaða popp. 

Ég gæti farið út í endalausar pælingar til að lýsa mér nánar sem tónlistarkonu en ég hef bara aldrei verið eitthvað sérstaklega góð í að útskýra svona lagað í stuttum orðum, kannski að það sé þess vegna sem ég sem svona mikið af tónlist, haha.

Hefur þetta nýja tónlistarefni verið lengi í bígerð?

Heldur betur, nýja lagið mitt heitir Carpool og var að koma út núna.

Það má segja að þetta sé búið að vera ágætlega löng fæðing þar sem ég samdi lagið sitjandi á gólfinu í forstofunni með opna hurð og í einum skó.

Mér lá einfaldlega það mikið á að koma því niður á blað. En það fór svo seinast í vinnslu í stúdíóinu þrátt fyrir að vera fyrsta lagið á væntanlegri EP plötu.

Hvernig myndirðu lýsa sjálfri þér sem tónlistarkonu?

Ég myndi segja að ég væri a bop queen en svo er ég líka alveg hógværa týpan svo ég myndi segja a friendly neighborhood bop queen.

Um hvað fjallar nýja lagið?

Lagið Carpool fjallar um tímamót og óvissu. Er alltaf betra að treysta á innsæi eða ættirðu stundum frekar að hlusta á það sem aðrir segja? 

Er rangt af þér að spyrja spurninga og efast eða er skrýtið að aðrir svari ekki? Maður spyr sig.

 Þetta hljómar smá tregafullt svona skrifað niður en ég er eiginlega frekar að gera grín af þessum frestunaráráttu-hausverk sem ég held að allir hafi upplifað á einn hátt eða annan.

Geturðu sagt mér frá EP plötunni í heild sinni?

EP platan sjálf dansar einnig í kringum mismunandi hugtök tengd tíma, bæði umfjöllun laganna og í prodúseringu. En þess má geta að Carpool er létt 60s inspired (and groovy baby).

Annars er ég alveg ótrúlega spennt fyrir komandi tímum, er búin að vera að vinna að þessari plötu lengi ásamt fleiru og get varla beðið eftir að deila henni með alheiminum!
Tara Mobee sendir frá sér EP plötu í sumar og hlakkar mikið til að deila henni með alheiminum. Anna Margrét/Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×