Cristiano Ronaldo lék á als oddi þegar Manchester United fékk Tottenham Hotspur í heimsókn í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Portúgalski markahrókurinn opnaði markareikninginn strax á tólftu mínútu þegar hann kom Man Utd í forystu með góðu skoti utan vítateigs sem söng í netinu.
Markahrókurinn í liði Tottenham, Harry Kane, jafnaði metin eftir rúmlega hálftíma leik þegar hann skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnu sem dæmd hafði verið á Alex Telles sem handlék boltann innan vítateigs.
Ronaldo var fljótur að ná forystunni aftur fyrir heimamenn þegar hann batt endahnútinn á góða skyndisókn þar sem Jadon Sancho lagði upp markið. Staðan í leikhléi 2-1 fyrir Man Utd.
Tom Brady revealed his allegiance for Man United despite his friendship with Tottenham striker Harry Kane #MUFC #THFC https://t.co/A0IcHqS2iw
— talkSPORT (@talkSPORT) March 12, 2022
Tottenham neitaði að gefast upp en fengu reyndar góða hjálp frá fyrirliða heimamanna því Harry Maguire setti fyrirgjöf Sergio Reguilon í eigið net á 72.mínútu.
Ronaldo hélt uppteknum hætti og náði forystunni í þriðja sinn fyrir Man Utd þegar hann skallaði hornspyrnu Alex Telles í netið á 81.mínútu.
Nú tókst Man Utd að halda forystunni allt þar til flautað var til leiksloka og mikilvægur 3-2 sigur staðreynd.