Kröpp lægð nálgast landið og appelsínugular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 25. janúar 2022 06:50 Viðvaranirnar taka gildi um miðjan dag eða eftir hádegi og gilda fram á kvöld og sums staðar fram á nótt. Veðurstofan Kröpp lægð er nú skammt vestur af landinu og hún fer austnorðaustur yfir land í dag. Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði því vaxandi suðvestanátt fyrri part dags og rigning eða skúrir, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti verður á bilinu núll til sex stig.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að víða verði vestan stormur eða rok seinnipartinn og kólni með éljum, en heldur hægari vindur og samfelldari úrkoma nyrst á landinu. „Það er sem sagt útlit fyrir varasamt ferðaveður víðast hvar á landinu í dag, og gular eða appelsínugular viðvaranir eru í gildi í flestum landshlutum. Vindakortið fyrir klukkan 17 í dag. Það lægir á vestanverðu landinu í kvöld, og austantil í nótt og fyrramálið. Á morgun verður svo hægur vindur á landinu og víða dálítil él, en yfirleitt þurrt á Norðurlandi. Frost 0 til 8 stig.“ Viðvaranirnar taka gildi um miðjan dag eða eftir hádegi og gilda fram á kvöld og sums staðar jafnvel fram á nótt. Spákortið fyrir klukkan 17 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Breytileg átt 3-10 m/s. Bjart með köflum, en dálítil él við S- og V-ströndina, og einnig NA-lands fram eftir degi. Frost 0 til 8 stig. Á fimmtudag: Suðvestan 5-13 og él, en bjart að mestu A-lands. Hiti breytist lítið. Sunnan 8-15 um kvöldið og hlýnar með rigningu eða slyddu S- og V-lands. Á föstudag: Snýst í suðvestan og vestan 10-18 með éljum um landið V-vert. Dálítil slydda eða snjókoma A-lands, en styttir upp þar eftir hádegi. Kólnar í veðri. Hvessir allvíða um kvöldið. Á laugardag og sunnudag: Vestan- og suðvestanátt og él, en lengst af þurrt A-lands. Frost 0 til 9 stig. Á mánudag: Norðlæg átt og él, en lengst af þurrt sunnan heiða. Talsvert frost.
Veður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira