Veður víðast rólegt en má reikna með stormi sunnanlands um miðnætti Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2022 07:12 Dálitlir skúrir eða él verða á sveimi sunnan- og vestanlands og hiti þar núll til fimm stig. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir tiltölulega rólegt veður á mestöllu landinu í dag en seint í dag nálgast svo lægð úr suðvestri sem mun valda vaxandi austanátt á sunnanverðu landinu. Nærri miðnætti má búast við hvassviðri eða stormi á þeim slóðum og það hvessir síðan víðar á landinu í nótt.
Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi, Faxaflóa og Suðausturlandi um miðnætti og gilda fram á morgun. Í dag er annars spáð er sunnan golu eða kalda, en strekkingi allra vestast. Dálitlir skúrir eða él verða á sveimi sunnan- og vestanlands og hiti þar núll til fimm stig. Þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi og frost þar. Á morgun er spáð allhvassri eða hvassri austanátt, en það dregur úr vindinum seinnipartinn. Rigning eða slydda suðaustan- og austanlands, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti yfirleitt á bilinu 0 til 5 stig. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan 13-20 m/s, en norðaustan 8-15 undir kvöld. Rigning eða slydda suðaustan- og austanlands, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Á sunnudag: Austan 5-10 og þurrt, en lítilsháttar skúrir eða él austantil á landinu. Hiti í kringum frostmark. Gengur í suðaustan og austan 10-20 seinnipartinn, hvassast með suðurströndinni. Fer að rigna á sunnanverðu landinu um kvöldið. Á mánudag: Breytileg átt og víða rigning eða slydda. Vaxandi norðvestanátt síðdegis, hvassviðri og slydda eða snjókoma um kvöldið, en þurrt sunnan heiða. Kólnandi veður. Á þriðjudag: Norðvestanátt og snjókoma á Norður- og Austurlandi í fyrstu, frost víða 0 til 5 stig. Snýst síðan í suðvestanátt með slyddu eða rigningu og hlýnar heldur, fyrst um landið sunnan- og vestanvert. Á miðvikudag og fimmtudag: Suðvestan- og vestanátt með éljagangi, en úrkomulaust austanlands. Frystir um allt land.
Veður Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira