Innlent

Reiknað með að atkvæðagreiðslu um kjörbréf ljúki annað kvöld

Heimir Már Pétursson skrifar
Það kemur í ljós annað kvöld hvort allir þeir sextíu og þrír þingmenn sem kjörbréf voru gefin út fyrir haldi þingsæti sínu eða hvort kosið verður aftur um sjö kjördæmakjörna þingmenn Norðvesturkjördæmis og níu jöfnunarþingmenn á landsvísu
Það kemur í ljós annað kvöld hvort allir þeir sextíu og þrír þingmenn sem kjörbréf voru gefin út fyrir haldi þingsæti sínu eða hvort kosið verður aftur um sjö kjördæmakjörna þingmenn Norðvesturkjördæmis og níu jöfnunarþingmenn á landsvísu Vísir/Vilhelm

Enn liggur ekki fyrir hversu margar tillögur koma til atkvæðagreiðslu á Alþingi á morgun varðandi staðfestingu eða synjun kjörbréfa vegna alþingiskosninganna í lok september. Niðurstaða þingsins ræður miklu um hvenær ný ríkissjórn og stjórnarsáttmáli verða kynnt.

Kjörbréfanefnd Alþingis kom saman til stutts fundar klukkan hálf tíu í morgun. Eftir fyrsta fund nefndarinnar í gær liggur fyrir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Flokks fólksins mynda meirihluta í nefndinni um að leggja til að Alþingi samþykki öll útgefin kjörbréf Landskjörstjórnar eftir alþingiskosningarnar hinn 25. september.

Einnig er ljóst að nokkur minnihlutaálit gætu komið fram þar sem nefndarmenn færa rök úr ólíkum áttum að sömu niðurstöðu. Þannig að hinar eiginlegu tillögur gætu orðið færri en álitin.

Birgir Ármannsson formaður kjörbréfanefndar reiknar með að atkvæðagreiðslu um kjörbréf geti lokið í síðasta lagi annað kvöld.Vísir/Vilhelm

Birgir Ármannsson formaður kjörbréfanefndar segir gert ráð fyrir að meirihluti nefndarinnar leggi til að kjörbréf allra sextíu og þriggja þingmanna verði staðfest. Enda væri ekki hægt að draga þá ályktun af rannsókn málsins að ógilda bæri kosninguna í Norðvesturkjördæmi.

„Það hafa komið fram gallar á framkvæmdinni þar en það hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að þeir gallar sem þar er um að ræða hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Lagaskilyrðið gengur nákvæmlega út á það,“ segir Birgir.

Umræðan fyrir atkvæðagreiðsluna á morgun gæti orðið löng og fari fram samkvæmt þingsköpum um aðra umræðu lagafrumvarpa þótt hann teldi þingmenn ekki endilega vera að búast við langri umræðu.

„Það er alla vega ljóst að bæði nefndarmenn og jafnvel aðrir þingmenn vilja með einhverjum hætti tjá skoðanir sínar. Það er nú samt enginn að búast við því að þetta verði margra daga umræða. Heldur gera men ráð fyrir að þetta klárist á morgun.“

Að atkvæðagreiðslan fari fram á morgun, menn reikna frekar með því?

„Já, það er gert ráð fyrir að það verði hægt að ganga þannig frá að atkvæðagreiðsla verði ekki seinna en annað kvöld,“ segir Birgir Ármannsson.

Ef niðurstaða atkvæðagreiðslunnar á morgun verður að öll kjörbréf verði samþykkt gætu stjórnarflokkarnir mögulega kynnt nýja ríkisstjórn og stjórnarsáttmála á laugardag. Það er að því gefnu að þær stofnanir flokkanna sem þurfa að leggja blessun sína yfir stjórnarsáttmálann nái að gera það á föstudag. Að öðrum kosti mun það dragast fram yfir helgi.


Tengdar fréttir

Al­var­legast hvernig staðið var að vörslu kjör­gagna

Alvarlegasti annmarkinn á framkvæmd alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi þann 25. september lýtur að vörslu kjörgagna á meðan yfirkjörstjórn yfirgaf talningarstað daginn eftir kjördag. Þetta er niðurstaða undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa sem lauk störfum í gær.

Vonast til að ný ríkis­stjórn verði kynnt í næstu viku

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist sjá fyrir sér að hægt verði að kynna nýja ríkisstjórn í næstu viku, að því gefnu að tímaáætlun um afgreiðslu tillagna kjörbréfanefndar, um hvort staðfesta skuli kjörbréf þingmanna gefin út á grundvelli endurtalningar í Norðvesturkjördæmi, standist.

Bein útsending: Rætt við þingmenn í kjörbréfanefnd

Alþingi kemur saman klukkan hálf tvö í dag eftir eitt lengsta þinghlé síðari ára. Undirbúningskjörbréfanefnd birtir greinargerð sína vegna framkvæmdar kosninga í Norðvesturkjördæmi einnig í dag en reikna má með tveimur og jafnvel fleiri álitum frá nefndarfólki.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×