Veður

Víða hæg breyti­leg átt með skúrum og slyddu­éljum

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu núll til sex stig þar sem mildast verður sunnanlands.
Hiti verður á bilinu núll til sex stig þar sem mildast verður sunnanlands. Vísir/Vilhelm

Víða verður hæg breytileg átt í dag, en suðvestan tíu til fimmtán metrar á sekúndu með suðausturströndinni og norðan strekkingur á Vestfjörðum. Spáð er skúrum og slydduéljum, en þurrt norðaustantil á landinu fram undir kvöld. Hiti verður á bilinu núll til sex stig þar sem mildast verður sunnanlands.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að miðja lægðar sé nú við Reykjanes og sé um að ræða sömu lægð og olli suðaustanstormi að á landinu aðfaranótt mánudags.

„Þessi lægð er því orðin nokkuð roskin af lægð að vera. Þá verða þær oft flatbotna eins og það er kallað á fagmálinu, þ.e. á stóru svæði nærri lægðarmiðjunni er lítill vindur. Umrædd miðja fer til norðausturs og því verður hæg breytileg átt á stærstum hluta landsins í dag, með þeirri undantekningu að suðvestan strekkingur sleikir suðausturströndina og norðaustan strekkingur nær inná Vestfirði. Úrkoma fylgir lægðarmiðjunni og verður hún að mestu skúrakennd, eða jafnvel slyddu hraglandi. Á norðaustanverðu landinu verður þó þurrt fram undir kvöld ef að líkum lætur.

Á morgun stjórnar sama lægðin áfram veðrinu hjá okkur, þá verður miðja hennar komin norðaustur fyrir land. Dregur hún þá norðanátt yfir norðanvert landið með éljum eða snjókomu. Hægari vindur og dálítil él sunnanlands framan af degi, en vaxandi norðanátt þar síðdegis og léttir til. Það kólnar eins og vera ber með norðanáttinni og hitinn á morgun víða í kringum frostmarkið.“

Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðan 8-13 m/s og snjókoma eða él á norðanverðu landinu. Hægari vindur og dálítil él sunnanlands framan af degi, en vaxandi norðanátt þar síðdegis og léttir til. Hiti kringum frostmark.

Á fimmtudag: Hæg austlæg eða breytileg átt, þurrt veður og bjart með köflum. Frostlaust við suðurströndina, annars frost 1 til 9 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Suðaustan 5-10 á Suður- og Vesturlandi undir kvöld og skúrir eða él með hita kringum frostmark.

Á föstudag: Suðlæg átt 3-10. Rigning eða snjókoma vestanlands og hiti um og yfir frostmarki, en þurrt í öðrum landshlutum og víða vægt frost.

Á laugardag: Gengur í hvassa suðaustanátt með rigningu sunnan- og vestanlands og hlýnar í veðri. Hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi.

Á sunnudag: Hvöss sunnanátt og rigning, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hiti 5 til 10 stig. Snýst í hvassa suðvestanátt seinnipartinn með skúrum eða slydduéljum og kólnandi veðri.

Á mánudag: Sunnan- og suðvestanátt og rigning, en þurrt norðaustantil á landinu. Hlýnar aftur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×