Sigurganga West Ham hélt áfram þegar Liverpool kom í heimsókn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Moyes var glaður í dag.
Moyes var glaður í dag. vísir/Getty

Lærisveinar David Moyes hafa unnið fjóra leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og eru komnir upp í 3.sæti deildarinnar.

Í dag fengu þeir Liverpool í heimsókn til Lundúna.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur því strax á fjórðu mínútu varð Alisson, markvörður Liverpool, fyrir því óláni að slá boltann í eigið net eftir hornspyrnu Pablo Fornals. Sjaldséð mistök hjá Brasilíumanninum öfluga.

Trent Alexander-Arnold sá til þess að liðin færu með jafna stöðu í leikhléið því hann skoraði flott aukaspyrnumark á 41.mínútu. Staðan í leikhléi því jöfn.

West Ham verið á mikilli siglingu að undanförnu og þeir tóku forystuna aftur í leiknum þegar  Fornals skoraði á 67.mínútu eftir undirbúning Jarrod Bowen. Nokkrum mínútum síðar tvöfaldaði Kurt Zouma forystuna þegar hann stangaði hornspyrnu Bowen í netið af fjærstönginni.

Divock Origi kom inn af bekknum hjá Liverpool og náði að klóra í bakkann fyrir gestina með marki á 83.mínútu en nær komust gestirnir ekki og 3-2 sigur West Ham staðreynd.

Úrslitin þýða að West Ham fer upp fyrir Liverpool í 3.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira