Innlent

Segir jarðakaup Bretans ofbjóða öllum og vera ömurlega þróun

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði.
Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Einar Árnason

„Þetta er farið að ofbjóða öllum,“ segir Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, um jarðakaup breska auðjöfursins Jims Ratcliffes í sveitinni, og segir Hafralónsá nánast í gíslingu vegna tilrauna hans til að ná meirihluta í veiðifélaginu.

Í þættinum Um land allt á Stöð 2 lýsa Gunnarsstaðabræðurnir Jóhannes og Steingrímur, fráfarandi forseti Alþingis, áhyggjum af byggðinni eftir jarðakaup Bretans.

Bræðurnir á Gunnarsstöðum, Steingrímur og Jóhannes, í viðtali í þættinum Um land allt.Einar Árnason

„Flestar jarðirnar hafa einhverjar hlunnindatekjur árlega af því að þær eiga land að laxveiðiám. Það hefur munað miklu í afkomu margra bænda hérna. Og svo lengi sem þessar tekjur haldast innan byggðarlagsins þá eru þær ákveðin kjölfesta og svona trygging fyrir búsetunni,“ segir Steingrímur.

Frá Hafralónsá í Þistilfirði.Einar Árnason

„Auðvitað eru þeir komnir í ákveðna girðingu hvað jarðakaupin varðar eftir frumvarp sem var samþykkt á Alþingi í vor, eða breytingu á jarðalögum sem Katrín kom nú fram, sko. Þá er ástandið miklu betra hvað það varðar. Þeir geta ekki keypt alveg endalaust. Hann er kominn langt, langt fram yfir þau mörk sem þessi lög segja til um,“ segir Jóhannes.

„Það er auðvitað ákveðin ógn,“ segir Sigurður Þór Guðmundsson, oddviti Svalbarðshrepps og bóndi í Holti.

Þau Sigurður Þór Guðmundsson og Hildur Stefánsdóttir eru bændur í Holti í Þistilfirði. Sigurður er oddviti Svalbarðshrepps.Einar Árnason

„Við sjáum það núna að það er hækkandi hlutfall þessara veiðitekna að renna annað. Hingað til hafa þær að mestu leyti runnið til uppbyggingar samfélagsins hérna og sveitanna.

Þannig að auðvitað er þetta ógn. En maður verður auðvitað að horfa á þetta sem einhverskonar tækifæri. Við getum ekki barist gegn því sem við ráðum ekki við,“ segir oddvitinn.

„Fyrir framtíðina er þetta bara ömurleg þróun, segi ég,“ segir Jóhannes.

Meira um jarðkaupin má sjá í þessum kafla úr þættinum:


Tengdar fréttir

Katrín fagnar fullyrðingu Ratcliffe og skýtur á stjórnarandstöðuna

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fagnar því á Facebook að breski auðkýfingurinn Jim Ratclifee ætli ekki að kaupa fleiri jarðir hér á landi. Það sé til marks um að stefna hennar í jarðarmálum hafi skilað árangri. Þar hafi markmiðið verði að koma í veg fyrir of mikla samþjöppun lands á fárra hendur.

Ratcliffe: „Ég mun ekki kaupa meira land“

Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe mun ekki sækjast eftir því að kaupa meira land á Íslandi þó það sé að hans sögn fullkominn staður fyrir verkefni hans til að styrkja stofn Atlantshafslaxins. Hann segist ekki vilja fá Íslendinga upp á móti sér.

Frumvarp um takmarkanir á landareign lagt fram

Frumvarpi forsætisráðherra um jarðamál sem dreift var á Alþingi í dag er ætlað að skýra reglur og takmarkanir á jarðakaupum. Einnig er kveðið á um skráningu upplýsinga um kaupverð og eigendur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×