Tónleikarnir sem eru í umsjón Iceland Airwaves áttu upphaflega að fara fram í ágúst á síðasta ári en þeim þurfti að fresta vegna heimsfaraldursins.
Um er að ræða fyrstu tónleika sem Björk heldur á Íslandi í þrjú ár og rennur hluti ágóða tónleikaseríunnar til Kvennaathvarfsins. Tónleikarnir hafa ólíka dagskrá og allir sína sérstöðu.
Kjóll Bjarkar vakti mikla athygli en hann var hannaður af japanska hönnuðinum Tomo Koizumi. Þá skartaði Björk grímu og hring eftir hönnuðinn James Merry og eyrnalokkum frá Aurum.
Á þessum fyrstu tónleikum flutti Björk eftirfarandi lög:
- Stonemilker
- Aurora
- I've Seen it All
- Sun in My Mouth
- You've Been Flirting
- Isobel
- Hyperballad
- Harm of Will
- Bachelorette
- Unison (flutt í fyrsta skipti síðan árið 2011)
RÚV var með beina útsendingu frá tónleikunum sem hægt er að horfa á hér.
Næstu tónleikar fara fram sunnudaginn 24. október þar sem Björk mun koma fram ásamt Hamrahlíðarkórnum.