Bíó og sjónvarp

Bílabíó snýr aftur á RIFF

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bílabíó RIFF vakti mikla lukku á hátíðinni á síðasta ári.
Bílabíó RIFF vakti mikla lukku á hátíðinni á síðasta ári. RIFF

Bílaplan Samskipa breytist í risastórt bílabíó þann 1. – 3. október. Boðið verður upp á söngvasýningu, sítt að aftan og íslenskan sunnudag.

Risastóru bíótjaldi verður komið fyrir á bílaplani Samskipa við Holtaveg, fyrstu helgina í október. RIFF leggur undir sig planið og tekur vel á móti bíó þyrstum bílstjórum og vinum þeirra.

Bílabíóið verður haldið þrjú kvöld í röð, frá föstudeginum 1. október og til sunnudagsins 3. október. Sýndar verða gamlar og nýjar myndir. Það gerist ekki covid vænna fyrir þá sem vilja passa sig á þessum síðustu og verstu tímum. Hver getur stjórnað sinni stemningu hvort sem valið er grafarþögn, spjallað yfir myndinni eða sungið hástöfum með.

Fyrsta kvöldið föstudaginn 1. október verður tileinkað ABBA og söngútgáfunni af hinni sívinsælu Mamma Mína (Mamma Mia) kl 20.00. Ef einhver þarna úti hefur alltaf langað að fara á svona  „syngja með“ sýningu en verið of feiminn þá er þetta kjörið tækifæri til að þenja raddböndin í prívat rými einkabílsins.

Á laugardeginum verður svo sítt að aftan kvöld eða ,,eighties night’’ þar sem sýndar verða myndirnar Blondie: Vivir En La Habana og Aha the Movie. Við getum lofað miklu stuði það kvöld því þessar hljómsveitir falla seint úr minni þeirra sem ólust upp á áttunda áratugnum. Blondie: Vivir En La Habana fylgir hljómsveitinni eftir í hljómleikaferð til Kúbu árið 2019 en það hafði lengi verið draumur þeirra fara þangað. Aha The Movie fer yfir feril meðlima sveitarinnar frá byrjun, frá því að vera óþekktir norskir strákar yfir í það að vera heimsþekktir popparar. Leitast er við að svara spurningunni hvort að stóri draumurinn hafi verið það sem þeir bjuggust við.

Á sunnudeginum verður svo ekta fjölskyldustemning klukkan 18:00 en hvaða barn er ekki til í að sjá Lói, þú flýgur aldrei einn í bílabíó? Klukkan átta verður svo öllu drungalegra andrúmsloft því þá mætir á skjáinn Ég man þig sem gerð er eftir metsölubók Yrsu Sigurðardóttur. Ef þú ert ekki búin að sjá þá mynd þá er tækifærið núna því þetta er mynd sem er þess virði á sjá á stórum skjá með dassi af óvenjulegri upplifun sem bílabíó óneitanlega er. Miðar fást hér.


Tengdar fréttir

BDSM, kristni og heimsmet í tölvuleikjum

Heimildamyndaflokkur RIFF í ár er mjög fjölbreyttur en þær 11 myndir sem sýndar eru voru flestar frumsýndar á stærstu heimildarhátíðum veraldar eins og Sundance, Tribeca, CPH:DOX og Alþjóðlegu heimildarmyndahátíðinni í Amsterdam.

Aldrei fleiri íslenskar myndir á dagskrá RIFF

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, hefst með krafti í næstu viku, fimmtudaginn 30. september. Miðasalan opnaði formlega í dag á vef hátíðarinnar, www.riff.is en þar er hægt að kaupa hátíðarpassa og staka miða. 

Myndirnar sem keppa um Gullna lundann á RIFF í ár

„Átta splunkunýjar myndir keppa um Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF í ár. Myndirnar koma frá átta löndum, og er umfjöllunarefni þeirra og efnistök einstaklega spennandi í ár,“ segir í tilkynningu frá RIFF






Fleiri fréttir

Sjá meira


×