Lífið

Myndirnar sem keppa um Gullna lundann á RIFF í ár

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
RIFF fer fram 30.september til 10. október.
RIFF fer fram 30.september til 10. október. RIFF

„Átta splunkunýjar myndir keppa um Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF í ár. Myndirnar koma frá átta löndum, og er umfjöllunarefni þeirra og efnistök einstaklega spennandi í ár,“ segir í tilkynningu frá RIFF

Um er að ræða myndir sem spanna allt litróf mannlegs veruleika, allt frá glæpamyndum yfir í mikið drama. Grái fiðringurinn, bankaglæpir, dulrænar upplifanir, morð og horfnar ástir eru meðal umfjöllunarefna.

„Þetta eru vel gerðar framsæknar myndir sem oft ögra viðteknum gildum í kvikmyndagerð og vísa veg kvikmyndalistarinnar til framtíðar. Marga þyrstir í að sjá myndir sem eru ekki gerðar eftir sömu formúlunni en það þarf snillinga til að brjóta upp hefðirnar þannig að það gangi upp. Myndirnar eiga það allar sameiginlegt að ögra forminu án þess að missa athygli áhorfandans. Virkilega spennandi kvikmyndir sem keppa í ár og það var úr vöndu að velja,“ segir Hrönn Marinósdóttir.

Gullni lundinn, verðlaunagripur hátíðarinnar.

Margar þeirra hafa nú þegar hlotið tilnefningar á öðrum hátíðum það sem af er þessu ári, tvær þeirra eru tilnefndar sem bestu nýliðarnir á Cannes til The Golden Camera Award og enn aðrar hafa þegar unnið verðlaun. Til dæmis vann Tungl 66 spurningar í leikstjórn Jacqueline Lentzou Cineuropa verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Sarajevo og Queen of glory í leikstjórn Nana Mensah hlaut verðlaun í Tribeca fyrir ,,Best New Narrative Director’’

Azor

Svissneskur bankamaður fer í sendiför til Argentínu til að leysa af hólmi samstarfsmann sem hefur horfið sporlaust. Leynilegt samfélag peningaaflanna leiðir hann á hættubraut. 6 tilnefningar, meðal annars á Berlínarhátíðinni og Kvikmyndahátíðinni í London.

Leikstjóri, Andreas Fontana.

Azor

Bruno Reidal, Játning morðingja

Ungur guðfræðinemi myrðir dreng árið 1905 og gefur sig fram við yfirvöld. Læknar skipa honum að skrifa æviminningar sínar til þess að reyna að skilja hvaða kenndir lágu að baki ódæðisverkinu. 

Leikstjóri Vincent Le Port.

Confession of a Murderer

Clara Sola - Alein

Hæglát fertug kona í Kostaríku verður fyrir kynferðislegri og dulrænni vakningu og hefur vegferð til að losna úr viðjum afturhaldssamra trúar- og félagslegra hefða.

Leikstjóri: Nathalie Álvarez Mesén

Clara Sola

Tungl. 66 spurningar – Moon 66 questions

Ung kona sem býr í París þarf að snúa aftur til Aþenu til að annast föður sinn, sem hún hefur fjarlægst. Yfir tilfinningasamt sumar kemst hún að ýmsu leyndu í hans fari og samband þeirra grær fyrir vikið. 

Leikstjóri Jacqueline Lentzou

Moon, 66 Questions

Drottning dýrðar – Queen of glory

Bráðgáfuð dóttir ganískra innflytjenda er í þann mund að kasta menntun sinni fyrir bí og elta kvæntan elskhuga sinn þvert yfir landið, er móðir hennar fellur frá og eftirlætur henni bókabúð í Bronx-hverfinu. 

Leikstjóri: Nana Mensah

Queen of Glory

Systur - Sisterhood

Vinátta tveggja unglingsstúlkna, sem eru óaðskiljanlegar, mætir þolraun þegar þær flækjast í morð á bekkjarsystkini sínu. 

Leikstjóri: Dina Duma

Sisterhood

Hvað sjáum við þegar við lítum til himna? What do we see when we look in the sky?

Sumarástin liggur í loftinu í smábæ einum í Georgíu. Áform Lísu og Giorgi um stefnumót breytast á augabragði er þau vakna umbreytt og hafa þar með enga leið til að þekkja hvort annað. 

Leikstsjóri: Alexandre Koberidze

What Do We See When We Look At The Sky

Villimenn – Wild Men

Til að losna við gráa fiðringinn hefur Martin flúið úr siðmenningunni í skóglendið til að lifa eins og villimaður. Þar rekst hann á dópmangara sem hristir upp í leit hans að sjálfinu.

Leikstjóri: Thomas Daneskov

Wild Men

Alla umfjöllun Vísis um RIFF má finna HÉR.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×