Jóhann Berg lagði upp en það dugði skammt

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson í baráttunni í leik kvöldsins.
Jóhann Berg Guðmundsson í baráttunni í leik kvöldsins. Clive Brunskill/Getty Images

Burnley er enn í leit að fyrsta sigrinum sínum í ensku úrvalsdeildinni eftir 3-1 tap gegn Everton á Goodison Park. Gestirnir komust yfir en þrjú mörk á skömmum tíma tryggðu sigur heimamanna

Eftir markalausan fyrri hálfleik var það miðvörðurinn Ben Mee sko kom gestunum yfir á 54. mínútu leiksins. Burnley hafði átt aukaspyrnu sem var skölluð frá, Jóhann Berg Guðmundsson gaf fyrir og Mee stangaði knöttinn í netið.

Adam var þó ekki lengi í paradís en heimamenn jöfnuðu metin aðeins sex mínútum eftir að Burnley komst yfir. Aftur var það vængmaður sem gaf fyrir og aftur var það miðvörður sem skallaði í netið. Að þessu sinni var það Andros Townsend sem átti fyrirgjöfina og Michael Keane sem skoraði.

Townsend kom svo Everton yfir á 65. mínútu með vinstri fótar skoti fyrir utan teig. Staðan var svo orðin 3-1 aðeins tveimur mínútum síðar en þá skoraði Demarai Gray. Slapp hann einn í gegn eftir sendingu Abdoulaye Doucoure.

Everton fer þar með upp í 4. sæti deildarinnar með 10 stig líkt og Manchester United, Chelsea og Liverpool sem eru í efstu þremur sætunum. Burnley er í 18. sæti með eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira