Frysti í byggð í fyrsta skipti í tvo mánuði Atli Ísleifsson skrifar 8. september 2021 07:25 Spákort fyrir klukkan 15 í adg. Hiti á landinu í dag verður á bilin tíu til fimmtán stig að deginum. Veðurstofan Það gengur í strekkings suðvestanátt norðvestantil á landinu, en annars verður vindur hægari. Frekar þungbúið verður vestantil á landinu með lítilsháttar vætu öðru hverju, en léttara yfir fyrir austan og þurrt. Hiti verður á bilinu tíu til fimmtán stig að deginum.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það nái síðan að létta víðast hvar til í kvöld og nótt og víða verði bjart og fallegt veður á morgun. Ennfremur segir frá því að það mældist vægt frost á nokkrum láglendisstöðvum seint í gærkvöldi og í nótt á Norðausturlandi, enda var hægviðri á landinu og einhverjar glufur hafa myndast í skýjahulunni. „Mesta frostið mældist tæplega 2 stig á Staðarhóli. Þetta er í fyrsta skipti sem frystir í byggð í meira en tvo mánuði (júlí og ágúst voru alveg frostlausir) og markar því lok á óvenjulanga röð frostlausra daga í byggðum landsins. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða bjart, en þykknar upp V-til þegar kemur fram á daginn. Hiti 10 til 15 stig að deginum. Á föstudag: Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil væta með köflum, en lengst af bjartviðri SA-til. Kólnar heldur V- og N-lands. Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða bjart. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst. Á sunnudag: Gengur í ákveðna suðaustanátt með talsverðri rigningu S- og V-lands, en hægari og þurrt lengst af NA-til. Hlýnandi. Á mánudag: Sunnanátt og rigning, en úrkomulítið á N- og A-landi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast NA-til. Á þriðjudag: Útlit fyrir að dragi úr vindi og úrkomu en áfram milt.
Veður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Sjá meira