Tónlist

Hélt að Reycup væri að grínast með að bóka hann

Snorri Másson skrifar
Emmsjé Gauti treður upp á Reycup í ár, eftir að hafa sent gestum hátíðarinnar kaldar kveðjur í fyrra.
Emmsjé Gauti treður upp á Reycup í ár, eftir að hafa sent gestum hátíðarinnar kaldar kveðjur í fyrra. Daníel Thor

Emmsjé Gauti er að spila á Reycup í dag og á laugardaginn, að öllu óbreyttu. Það hefur vakið lukku á Twitter, þar sem flestum er enn í fersku minni pilla sem rapparinn sendi gestum hátíðarinnar í fyrra, eftir að smit greindist í hópnum.

„Eins gott að það hafi verið gaman á Rey Cup litlu skítarnir ykkar,“ skrifaði Gauti á Twitter í kjölfar frétta af smitum á mótinu og frétta af því að gripið hefði verið til hertra sóttvarnaráðstafana innanlands í fyrsta sinn um nokkurt skeið.

Gremjan var á þessum tímapunkti nokkuð mikil á meðal atvinnulausra tónlistarmanna, en Gauti segir þó í samtali við Vísi að vissulega hafi útlegging fjölmiðla á tísti hans á þessum tíma verið fullbókstafleg.

„Þetta var eiginlega bara grín sem sprakk. Ég hafði í raun og veru enga skoðun á þessu fótboltamóti, ég bara greip eitthvað á lofti. En þetta var bara fyndið og auðvitað ákveðið móment að það hafi verið gert grín að þessu í skaupinu,“ segir Gauti.

Vegna umræðunnar sem tístið hafði hrundið af stað kom það rapparanum á óvart að fá símtal frá Reycup í vor, þar sem hann var beðinn um að spila á íþróttamótinu.

„Ég var bara, eruði að djóka? En meirihluti fólks hafði nú bara húmor fyrir þessu þótt nokkrir pirraðir einstaklingar hafi upplifað þetta sem árás á börnin þeirra, sem þetta var náttúrulega ekki,“ segir Gauti.

Grínið hefst í kringum mínútu 25.

Heldur kjafti og hlýðir

Fjöldi smita undanfarna daga hefur verið ískyggilegur og sóttvarnalæknir kveðst vera að íhuga að grípa til aðgerða innanlands. Gauti segir blendnar tilfinningar uppi um Reycup í ljósi smita, en að stuðið hafi verið nokkuð mikið síðan tilslakanir tóku gildi og skemmtanalífið fór aftur af stað.

Nú virðist allt horfa til verri vegar: „Ég meina við bara bólusettum okkur, fórum aftur út að djamma og núna virðist það bara ekki vera að virka. Ég hef enga lausn á þessu, ég bara held kjafti og hlýði,“ segir Gauti.

Þegar eru brögð að því að verið sé að aflýsa viðburðum í ljósi ástandsins en Gauti segist lítið hafa orðið var við að afbókanir tónlistarmanna séu hafnar. „En talan fer hækkandi með hverjum deginum,“ segir hann áhyggjufullur.

Hvernig sem fer má að sögn rapparans hugga sig við að ný Kanye West plata sé að koma út á föstudaginn.


Tengdar fréttir

Kom heim og „allt var brjálað“ á Twitter

Færsla Emmsjé Gauta vakti mikla athygli í gær þar sem hann beindi sjónum sínum að fótboltamótinu Rey Cup skömmu eftir að hertar aðgerðir voru tilkynntar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×