Hiti allt að 24 stigum norðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 8. júlí 2021 07:11 Hiti verður á bilinu níu til fjórtán stig en öllu bjartara yfir á austanverðu landinu. Vísir/Vilhelm Spáð er suðvestan átta til þrettán metrum á sekúndu norðvestan- og vestanlands, og einnig með suðausturströndinni, en hægari breytileg átt annarsstaðar. Skýjað og úrkomulítið verður á vesturhelmingi landsins en dálítil rigning norðvestantil.
Spáð er suðvestan átta til þrettán metrum á sekúndu norðvestan- og vestanlands, og einnig með suðausturströndinni, en hægari breytileg átt annarsstaðar. Skýjað og úrkomulítið verður á vesturhelmingi landsins en dálítil rigning norðvestantil. Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu níu til fjórtán stig og öllu bjartara yfir á austanverðu landinu. Þar muni víða sjást til sólar með sextán til 21 stigs hita, og allt að 24 stigum þar sem best lætur í innsveitum á Norðausturlandi. „Það eru þó víða þokubakkar á sveimi við sjávarsíðuna og mun svalara í þeim. Heilt yfir eru litlar breytingar í veðri fyrir morgundaginn, miðað við daginn í dag, en þó er vert að nefna að útlit er fyrir heldur meiri vætu á höfuðborgarsvæðinu.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðlæg átt, víða 5-10 m/s. Skýjað vestantil og súld með köflum suðvestan- og vestanlands, en víða bjartviðri um austanvert landið. Hiti 11 til 24 stig, hlýjast í innsveitum norðaustantil. Á laugardag: Suðaustlæg átt, skýjað og úrkomulítið um landið S- og V-vert, en þurrt og bjart að mestu norðan- og austantil. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast í innsveitum norðaustanlands. Á sunnudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en líkur á síðdegisskúrum inn til landsins. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast í uppsveitum vestanlands. Á mánudag: Suðlæg átt og skúrir, en þurrt austantil. Áfram hlýtt í veðri. Á þriðjudag: Suðvestan átt og súld með köflum, en skýjað og úrkomulítið austantil á landinu. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestanátt og rigningu um vestanvertlandið, annars þurrt. Kólnar heldur í veðri.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Sjá meira