Ítalir með fullt hús stiga og enn ekki fengið á sig mark

Anton Ingi Leifsson skrifar
Létt yfir Ítölunum í leikslok.
Létt yfir Ítölunum í leikslok. Mike Hewitt/Getty Images)

Ítalía hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína á Evrópumótinu 2020 og fer þar af leiðandi nokkuð þægilega upp úr A-riðlinum.

Matteo Pessina skoraði fyrsta og eina mark leiksins í dag er Ítalía vann 1-0 sigur á Wales. Markið kom á 36. mínútu.

Ítalir voru meira með boltann en Wales bitu frá sér án þess að ná að skora framhjá Gianluigi Donnarumma sem fór þó meiddur af velli í uppbótartíma.

Ethan Ampadu fékk að líta beint rautt spjald á 56. mínútu og léku Walesverjar því einum manni færri í rúmlega hálftíma.

Ítalía er því komið áfram með markatöluna 7-0 og níu stig. Það er bjart yfir ítalska liðinu en Wales er einnig komið áfram eftir að hafa endað í öðru sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira