Tónlist

Hipsumhaps gefur út nýja plötu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Fannar Ingi Friðjónsson gaf í gær út Hipsumhaps plötuna Lög síns tíma.
Fannar Ingi Friðjónsson gaf í gær út Hipsumhaps plötuna Lög síns tíma.

Önnur breiðskífa Hipsumhaps er komin út ber heitið Lög síns tíma. Um er að ræða samtímaverk sem að hefur verið í vinnslu frá því að samkomubannið var sett á í mars á síðasta ári

Lög síns tíma fylgir á eftir fyrstu plötu Hipsumhaps, Best gleymdu leyndarmálin, sem kom út haustið 2019. Upptökur fóru fram síðastliðinn vetur í upptökuverunum í Tónhyl og Sundlauginni. Fannar Ingi Friðþjófsson samdi sjálfur alla texta plötunnar. 

Þessi plata var útsett af Fannari Inga og Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Platan er nú komin í heild sinni á Spotify. Fannar Ingi sagði um plötuna í viðtali við Vísi á dögunum: 

„Mér finnst hún þroskaðari og í raun ennþá meira Hipsumhaps.“

Plötuumslagið er hannað af Sigurði Ými Kristjánssyni og skartar ljósmynd eftir Ragnar Axelsson, RAX, ljósmyndara hér á Vísi.

Plötuumslagið er hannað af Sigurði Ými Kristjánssyni og skartar ljósmynd eftir Ragnar Axelsson (RAX).

Hipsumhaps hlaut mikið lof fyrir plötuna Best gleymdu leyndarmálin á síðasta ári sem að innihélt lög eins og Lífið sem mig langar í og Fyrsta ástin. Fannar segir að nýja platan gangi alveg upp sem framhald af þeirri fyrri. Lögin 2021, Þjást, Á hnjánum og Meikaða hafa vakið töluverða athygli síðustu vikur. 

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Þjást af plötunni Lög síns tíma. 

„Þjást er lag sem ég samdi fyrir nokkrum árum og fjallar í rauninni bara um samskipti við aðra manneskju, sem þú ert hrifinn af. Upplifa stórar tilfinningar, það þarf ekkert að vera bara að vera ógeðslega ástfanginn, þetta getur líka verið kvíði yfir því að manneskjan sé ekki að upplifa það sama og fara fram úr sér,“ segir Fannar Ingi um lagið. 

Fannar Ingi tók sjálfur töluverða persónulega áhættu við að gera þessa plötu í miðjum heimsfaraldri. Plötuna Lög síns tíma fjámagnaði hann meðal annars með því að selja auglýsingar í tónlistarmyndbandið fyrir lagið Meikaða. 

„Auðvitað gerum við þá myndband sem er eitt stórt „product placement“. Feit pæling sem gekk upp. Lil Binni og crewið með þetta á hreinu. Og þetta endaði síðan á að vera mín leið til þess að fjármagna plötuna sem er snilld.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×