Stóra prumpumálið reynist babb í bát hjá Abbababb Jakob Bjarnar skrifar 26. apríl 2021 12:33 Jón Gnarr er höfundur textans Prumpufólkið við lag Dr. Gunna, lags sem sló í gegn og er úr söngleiknum Abbababb. Nú er kvikmynd sem byggir á þeim söngleik í tökum en Jón er hins vegar ekki áhugasamur um neitt samstarf við framleiðanda myndarinnar, Júlíus Kemp; telur að milli þeirra tveggja séu óuppgerð mál. Jón Gnarr er höfundur texta við lag Dr. Gunna og hann hefur lagt blátt bann við notkun hans í kvikmyndinni Abbababb sem nú er í tökum.
Þetta gerir Jón meðal annars vegna óuppgerðra mála sem hann telur sig eiga við Júlíus Kemp framleiðanda myndarinnar. Abbababb er íslensk dans- og söngvamynd sem byggir á samnefndum söngleik eftir Dr. Gunna tónlistarmann. Leikstjóri er Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ásgrímur Sverrisson skrifar handritið en þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson framleiða fyrir Kvikmyndafélag Íslands. Abbababb hlaut 120 milljóna króna vilyrði frá Kvikmyndamiðstöð. Í söngleiknum sló Prumpulagið, eða Prumpufólkið, rækilega í gegn en fæstir vita að textinn er eftir Jón. „Já, Stóra prumpumálið,“ segir Jón í samtali við Vísi. Jón Gnarr segir að farist hafi fyrir að fá leyfi hjá sér. „Hefur borið við í sambandi við þetta lag að fólk virðist ekki átta sig á því að ég höfundur texta í þessu lagi, en það yfirleitt skrifað á Dr. Gunna. Ég hafði samband við Nönnu Kristinu, bara til að forvitnast um hvort þau ætluðu að nota þetta lag og hvort fólk væri upplýst um að ég ætti þennan texta,“ segir Jón. Í framhaldinu hafði Júlíus samband við hann í gegnum tölvupóst en ekki náðust samningar. Deilan á sér langa sögu Nú mætti ætla að ekki væri mikið mál, þegar um mikla framleiðslu á borð við heila kvikmynd er að ræða, að ganga frá leyfi fyrir því að nota einn söngtexta í henni. En málið á sér forsögu sem nær allt aftur til ársins 2002 og myndarinnar Maður eins og ég sem Jón lék í, Róbert Douglas leikstýrði en Júlíus og fyrirtæki hans Kisi framleiddi. Jón telur sig hlunnfarinn vegna þeirra viðskipta. Eins og sjá má í frétt Fréttablaðsins frá 13. desember 2002 töldu margir aðstandenda myndarinnar sig grátt leikna, en samningar hljóðuðu uppá að þeir fengju greitt að fullu færi myndin 20 þúsund áhorfendur. Til þess kom þó ekki, myndin var tekin úr sýningum þegar þeir voru orðnir 19.519 talsins. „Já, ég alltaf litið svo á að við eigum þetta óuppgert. Að hann hafi ekki komið fallega fram við mig, fannst mér. Ég kom að þessari mynd sem leikari, endasentist alla leið til Hong Kong til að leika í þessu, lagði mikið á mig og fannst ég ekki eiga þetta skilið. Fannst þetta alltaf vera óuppgert, og vildi gera það mál upp. Var nú bara þannig. Skilst að þau hafi ætlað að gera þetta með nýjum texta.“ Jón Gnarr segir að hann hafi á sínum tíma farið með málið fyrir dóm í kjölfar þess að Jón hitti mann sem starfaði við Maður eins og ég sem tjáði honum að þetta væri vitleysa, myndin væri löngu búin að ná settu marki og sjálfur væri hann búinn að fá borgað. Jón hafði samband við lögfræðing sem taldi málið borðleggjandi, það fór í ferli og fyrir hérað en á fundi þar sagði dómari að best væri fyrir alla að ekki yrði dæmt í því máli. „Já, eins og ég man þetta. Dómarinn sagði að það væri ljóst að sá sem héldi utan um tölur um aðsókn frá kvikmyndahúsunum væri Júlíus og hann hafi greinilega ekki verið að setja þær tölur fram með heiðarlegum hætti, heldur hagrætt þeim.“ Fær ekkert kikk út úr því að skemma fyrir krökkum Að sögn Jóns bauð dómari Júlíusi þá að semja við Jón, það færi best á því vegna þess að það yrði honum aldrei í hag ef málið yrði dómtekið. „Jájá, það var gert eitthvað hlé, við ræddum þetta, þá ákveður Júlíus í samráði við sinn lögmann að gera sitt fyrirtæki, Kisi ehf., gjaldþrota. Og þá var ekki hægt að gera neitt í þessu. Ekki hægt að krefja gjaldþrota fyrirtæki um eitt eða neitt.“ Jón segist þannig hafa orðið af laununum og að auki þurft að borga lögmanni sínum upphæð sem hefði verið jafnvirði launanna sem aldrei voru greidd. „Júlíus hefur ekkert talað við mig. Eins og ég sagði við Nönnu, ég er ekki að fá neitt kikk út úr því að skemma fyrir fullt af fólki, að vera fúli kallinn sem skemmir fyrir krökkum en rétt skal vera rétt. Minnsta sem hann getur gert er að tala við mig og við sest yfir kaffibolla eða eitthvað. En það hefur enginn talað neitt við mig frá framleiðslunni, bara einhverjir e-mailar,“ segir Jón.
Kvikmyndagerð á Íslandi Leikhús Höfundarréttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Ósanngjarnt hvernig stúlkan var dregin inn í umræðu sem var að miklu leyti „algjör þvæla“ Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Lífið Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Lífið Fleiri fréttir Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn Eliza hlaut heiðursverðlaun Fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík Gerður Kristný hlýtur virt norsk bókmenntaverðlaun Hættir sem leikhússtjóri og hefur störf í ráðuneytinu Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu Amanda og Brák meðal handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna Kaflaskil í íslenskri menningarsögu Hjartnæm stund Guðna með Herði og Kára Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024 Kristín Ómarsdóttir meðal þeirra sem hlaut Fjöruverðlaunin Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun „Óþekka barnið“ í íslenskri myndlist fer nýjar leiðir Íslensk strandmenning í brennidepli á Akranesi Þrífst vel í brjálaðri vinnumenningu í New York Samtal við mömmu sem olli straumhvörfum Deilt um hinn dísæta hnakka: Forheimskandi efnishyggja eða vítamínsprauta? Lofar breyttu lífi með fyrirvara „Tækifæri til að pæla í fallegri veruleika eftir dauðann“ Troðfullt í Marshall-húsinu á opnun listrænna systra Tóku saman höndum fyrir Hendi næst Settist í öll sæti Eldborgar og tók 5000 sjálfsmyndir Emils- og Línu-tónskáldið Georg Riedel látið Kristín og Anna tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Hildur Hermóðsdóttir er látin Taka stutt hlé frá leikhúsinu fyrir ferðalög til Perú og Keníu Sjá meira