Hlýjast á Norðurlandi og rigning sunnan- og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 15. apríl 2021 07:23 Það verður rigning um landið sunnan- og vestanvert, og sums staðar talsverð rigning, einkum á Suðausturlandi. Vísir/Vilhelm Landsmenn mega eiga von á vaxandi suðaustanátt í dag, víða þrettán til tuttugu metrar á sekúndu eftir hádegi. Það verður rigning um landið sunnan- og vestanvert, og sums staðar talsverð rigning, einkum á Suðausturlandi.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að norðaustantil á landinu verði hins vegar víðast hvar úrkomulítið, en þó séu líkur á dálítilli vætu við ströndina. Hiti á landinu verður víðast sex til fjórtán stig þar sem hlýjast verður á Norðurlandi. „Sunnan og suðvestan 13-18 m/s og rigning og síðar skúrir á morgun, en léttskýjað um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 7 stig, en 7 til 14 stig á Norður- og Austurlandi. Síðdegis dregur svo úr vindi og kólnar, og þá má búast við slydduéljum norðvestantil á landinu,“ segir í færslunni. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan og suðvestan 13-18 m/s og rigning eða skúrir, en þurrt og víða bjart um landið NA-vert. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast á N- og A-landi. Dregur úr vindi síðdegis. Á laugardag: Suðlæg átt 5-13 og skúrir eða él, en þurrt á N- og A-landi. Hiti 2 til 9 stig. Fer að rigna A-til á landinu um kvöldið. Á sunnudag: Suðvestan 8-15 og skúrir eða él, en léttskýjað um landið A-vert. Hiti 1 til 5 stig að deginum. Á mánudag: Vestlæg átt og él, en áfram léttskýjað eystra. Hiti um eða yfir frostmarki. Á þriðjudag: Vestlæg átt og víða bjart veður, en dálítil él við N-ströndina. Hiti 0 til 8 stig. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðaustanátt með vætu um landið S- og V-vert. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Sjá meira