Liverpool sagt hafa áhuga á gömlu Arsenal hetjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2021 09:31 Aaron Ramsey fagnar einu marka sinna með Arsenal. EPA-EFE/ANDY RAIN Aaron Ramsey gæti farið frá Juventus til Liverpool í sumar ef marka má fréttir frá Ítalíu.
Velski landsliðsmaðurinn er mögulega á leiðinni aftur í ensku úrvalsdeildina en það yrði örugglega mjög skrýtið fyrir marga að sjá hann í treyju Liverpool á næstu leiktíð. Aaron Ramsey er þrítugur miðjumaður og hefur spilað með Juventus frá 2019 þegar hann fór fram Arsenal á frjálsri sölu. Hann hafði þá spilað með Arsenal í meira en áratug. Could he be the missing ingredient for Liverpool? https://t.co/diaCYHY516— TEAMtalk (@TEAMtalk) March 23, 2021 Aaron Ramsey varð ítalskur meistari á sínu fyrsta tímabili með Juventus en það hefur ekki gengið eins vel hjá liðinu á þessu tímabili. Ítalski vefurinn Calciomercato segir að Liverpool sé að íhuga það að kaupa velska miðjumaninn frá Juventus þar sem hann er með samning til 2023. Liverpool er að skoða í kringum sig og leita að eftirmanni hollenska miðjumannsins Georginio Wijnaldum sem er væntanlega á förum þegar samningur hans rennur út í sumar. Wijnaldum semur líklegast við Barcelona ef marka má fréttir að utan. NEW: Liverpool are interested in bringing Aaron Ramsey back to the Premier League this summer. [Calciomercato] pic.twitter.com/XJi1Zuf0Ku— The Anfield Talk (@TheAnfieldTalk) March 22, 2021 Liverpool hefur verið orðað við fleiri miðjumenn að undanförnu en það gæti verið góður kostur að ná í Ramsey sem á að baki meira en 250 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool er ekki eina enska liðið sem hefur áhuga því Calciomercato segir að hann sé líka inn í myndinni hjá West Ham og Tottenham. Það kemur hins vegar ekkert fram hvort að Arsenal sé áhugasamt um að kaupa hann frá Juventus eftir að hafa fengið ekkert fyrir hann þegar Ramsey fór sumarið 2019.
Enski boltinn Mest lesið Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Golf Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúla 1 Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Slegist á Skaganum, keyrt í Kína, enski boltinn rúllar og rúgbíið bíður Sport „Gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina“ Sport „Ég set blóð, svita og tár í þetta og mér finnst ekkert skemmtilegra“ Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 94-88 | Deildarmeistarar eftir magnaðan viðsnúning Körfubolti Geta hefnt fyrir ófarir Hákonar annað kvöld Sport Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Handbolti Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti Fleiri fréttir Fær lengra leikbann og er til rannsóknar fyrir að hrinda boltastráki Sjáðu sniðugustu hornspyrnur tímabilsins Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal „Allir hjá Manchester United elska hann“ Einkaviðtal við Cody Gakpo: „Það eru miklar væntingar frá öllum“ Kvaddi Chelsea með tárin í augunum Hörmuleg vika fyrir ensku liðin í Meistaradeildinni Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Segja að Tudor stýri Tottenham á móti Liverpool Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Scholes bað Carrick afsökunar Rosaleg dagskrá Man. City að hefjast Barton ákærður fyrir líkamsárás Tudor segir að fallslagurinn sé mikilvægari en Meistaradeildin Segir ógeðslegt að gera grín að vítaklúðrum West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Fékk rúmlega þrettán milljóna króna sekt fyrir ummæli um dómara Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Leeds í átta liða úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 2003 Stuðningsmaður Newcastle tryggði óvæntasta sigur helgarinnar gegn Sunderland Guardiola ætlar að skella sér í frí „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Marmoush skaut City áfram í bikarnum í fjarveru Haaland Garnacho í aðalhlutverki í sigri á Hollywood-liðinu Skrifar undir nýjan samning við Liverpool Sjá meira