Arsenal burstaði WBA í snjónum á Hawthorns

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kieran Tierney
Kieran Tierney vísir/Getty

Arsenal virðist loks komið á beinu brautina undir stjórn Mikel Arteta en liðið vann afar sannfærandi sigur á lærisveinum Sam Allardyce í West Bromwich Albion í kvöld.

Snjó kyngdi niður í aðdraganda leiksins og á meðan honum stóð og brugðu fjölmargir leikmenn á það ráð að klæðast gammósíum í kuldanum á The Hawthorns.

Skoski bakvörðurinn Kieran Tierney var ekki einn af þeim en hann opnaði hins vegar markareikninginn þegar hann kom Arsenal yfir á 23.mínútu með góðu skoti með hægri fæti.

Fimm mínútum síðar tvöfaldaði Bukayo Saka forystu gestanna eftir flotta sókn og leiddu Arsenal með tveimur mörkum gegn engu í leikhléi.

Arsenal var miklu betri aðilinn allan leikinn og Alexandre Lacazette bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleiknum. Lokatölur 0-4 fyrir Arsenal sem lyftir sér þar með upp í ellefta sæti deildarinnar.

WBA eftir sem áður í næstneðsta sæti með aðeins átta stig og ljóst að krefjandi verkefni bíður Sam Allardyce.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira