Íslenskur atvinnumaður í klettadýfingum 24. mars 2008 20:11
Hinn 32 ára Egill Ormarsson er íslenskur í húð og hár en flutti fimm ára gamall til Danmerkur með móður sinni og bróður. Þar kynntist hann dýfingum og hóf að stunda þær af kappi strax sem stráklingur. Að loknum menntaskóla var keppnisferli Egils í ólympískum dýfingum lokið. Hann var þó ekki til í að hætta alveg og sneri sér því að dýfingarsýningum. Það var svo í gegnum þessar sýningar sem Egill kynntist jaðaríþróttinni klettadýfingum, en einungis um 30 einstaklingar keppa reglulega í þessari íþrótt á heimsvísu og er Egill einn þeirra. Hann er eini Íslendingurinn sem keppir í þessari fágætu jaðaríþrótt. Keppnirnar eru haldnar víðs vegar um heiminn en þessar myndir voru teknar á heimsmeistaramótinu í Acapulco í Mexíkó í lok nóvember á síðasta ári. La Quebrada kletturinn þar er einn frægasti dýfingarstaður heims og hefur heimsmeistaramótið verið haldið þar síðan árið 2003. Af þeim dýfingastöðum sem keppt er á í heiminum er þessi talinn einn sá hættulegasti. Stokkið er úr 25 metra hæð og þar sem kletturinn er aflíðandi út á við þarf að spyrna sér ansi langt út til að forðast að lenda á honum. Vatnsdýptin er þar að auki ekki nema 3 metrar þannig að ekkert má fara úrskeiðis við stökkið. Því er haldið fram að hæðin frá efsta klettinum sem stokkið er frá sé 35 metrar en líklega má draga nokkra metra frá því. Þrátt fyrir að Egill sé vanur því að stökkva úr mikilli hæð hefur hann í raun aldrei vanist tilfinningunni. „Ég er alltaf dálítið hræddur fyrir hvert stökk og þarf að stappa í mig stálinu áður en ég stekk, en það hjálpar mér líka að halda einbeitingunni," segir Egill. Dýfingamennirnir þurfa einnig að fylgjast grannt með inn- og útöldunni því að munurinn á vatnsdýptinni getur verið einn og hálfur metri. „Maður horfir á ákveðinn punkt utan við klettana og stekkur þegar aldan er á leið inn, annars er voðinn vís," segir Egill. Þetta er fámennt bræðralag dýfingamanna og mikill og náinn vinskapur hefur myndast með þeim gegnum árin. Egill passar upp á að vera bæði úthvíldur og einbeittur rétt fyrir fyrsta stökkið. „Á þessum tímapunkti hugsa ég bara um stökkið sem ég er að fara að framkvæma," segir hann og bætir við: „Ég er mjög spenntur." Eftir erfiða keppni leyfa menn sér þó að slappa vel af. „Maður er jú í Mexíkó," segir Egill og fær sér sopa af köldum bjórnum í hitanum. Það er hluti af stemningunni í hópnum, sem kemur saman til að taka þátt í þessum keppnum, að hittast og spjalla í rólegheitunum. Stökkin eru flókin og tæknilega erfið en á sama tíma þurfa þau að vera fallega útfærð og glæsileg. Stökkinu er hægt að deila í þrjá hluta. Það þarf kraft og nákvæmni þegar stokkið er frá klettinum, því næst eru skrúfur og snúningar útfærðar með tæknilegri snilld og að lokum þarf dýfarinn að rétta sig af og ná að lenda teinréttur í vatninu til að koma í veg fyrir stóra skvettu. Allt tekur þetta tæpar þrjár sekúndur. „Tilfinningin rétt áður en ég stekk fram af klettinum er mjög sérstök. Þá átta ég mig á því að það verður ekki aftur snúið. Og í lok stökksins þegar ég flýg í gegnum loftið rétt áður en ég lendi í vatninu á u.þ.b. 85 km hraða, fæ ég adrenalínkikk," segir Egill sem lenti í áttunda sæti af 16 keppendum. Teitur Jónasson er ljósmyndari hjá Nyhedsavisen í Danmörku. Hann fylgdi Agli Ormarssyni eftir við klettadýfingar í Mexíkó.
Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Menning 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira