Rummungar sækja í eldri Subaru-bifreiðar Óli Kristján Ármannsson skrifar 12. janúar 2015 07:00 1999 árgerðin af Subaru Legacy. Bíllinn sem stolið var aðfaranótt fimmtudags er kominn í leitirnar. Mynd/IFCAR
Gamlir Subaru-bílar hafa upp á síðkastið notið vinsælda hjá bílaþjófum. Síðast var stolið sextán ára gömlum grænum Subaru Legacy-bíl í Laugarneshverfi í Reykjavík aðfaranótt fimmtudags. Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki laust við að svo virðist sem þjófar eigi eitthvað auðveldara með að komast inn í þessa bíla en aðra. „Það fór einn í nótt og svo hafa verið teknir einhverjir fjórir eða fimm á síðustu mánuðum sem ég man eftir,“ segir hann. Oftast finnist þessir bílar fljótlega, þótt brenna vilji við að þeir hafi eitthvað skemmst, eða umgengni um þá verið slæm.Sunna Dís MásdóttirSunna Dís Másdóttir, eigandi bílsins sem síðast hvarf, segir þjófnaðinn hafa uppgötvast í síðustu viku þegar eiginmaðurinn ætlaði út í búð. Bíllinn fannst síðar sama daginn og bar þess merki að hafa lent í árekstri. „Ég spyr mig hverju fólk er á höttunum eftir,“ segir Sunna og bætir við að ekki hafi verið fyrir verðmætunum að fara í bílnum. „Ég veit ekki hversu eftirsóknarverður svona skrjóður er, en mér þykir voða vænt um hann.“ Guðjón Helgi Ólafsson, sérfræðingur í bíliðnum og stoltur Subaru-eigandi sjálfur, segir þekkt að slitnir lyklar geti stundum gengið að slitnum lásum og svissum bílanna. Á árum áður var þekkt að með þessum hætti mátti stundum komast inn í og jafnvel ræsa gamlar Saab- og Volvo-bifreiðar. Ráð við þessu segir Guðjón geta verið að leita til aðila á borð við Neyðarþjónustuna og láta skera út nýjan lykil. „Þegar maður er búinn að nota nýjan lykil í smástund er erfiðara að nota slitinn lykil,“ segir hann. „En það er svo sem eins víst að þessir andskotar brjóti þá bara rúðuna,“ bætir hann við. Önnur leið gæti því verið að fjárfesta í þjófavörn sem sett er í eftir á. Þar sé þó kostnaður farinn að skipta máli, því ekki kosti gamlir Subaru-bílar mikið. „En, kannski betra að eiga sinn gamla Subaru en að vanta hann?“ Samkvæmt upplýsingum frá Nesradíói sem sérhæfir sig í slíkum ísetningum kostar slíkt kerfi 50 til 60 þúsund krónur þegar það er komið í. En svo eru líka til ódýrari leiðir. „Ég hef einmitt heyrt af einni sem átti Subaru sem alltaf var verið að taka,“ segir Sunna Dís. „Hún er farin að læsa stýrinu með keðjulás við sætið.“Rúna TetzschnerListaverk og gamlar ferðatöskur horfnar Subaru Legacy-bíl listakonunnar Rúnu K. Tetzschner, var stolið í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt gamlársdags. Bíllinn fannst í Seljahverfi í Breiðholti 2. janúar, en 46 listaverk sem í honum voru eru ófundin enn. Verkin voru í skotti bílsins í tveimur gömlum ferðatöskum, sem einnig hafa tilfinningalegt gildi fyrir Rúnu.„Ég er sjálf, listamaðurinn, bláfátæk en tjónið er líka óbætanlegt fyrir mig þar sem um eigin sköpunarverk er að ræða. Ég held enn í vonina um að myndirnar finnist,“ segir hún. Aðra töskuna erfði hún frá afa sínum, en hann hafði haft í henni aleiguna þegar hann flutti ungur maður frá Jótlandi til Sjálands.„Hina erfði ég frá manninum mínum heitnum, Þorgeiri Rúnari Kjartanssyni, tónlistarmanni og rithöfundi, sem geymdi í henni ljóð sín og skrif. Sjálf hef ég geymt myndirnar mínar í töskunum og þær hafa fylgt mér á ferðalögum síðustu 16 árin.“ Rúna segir að viti einhver um eigur hennar megi hafa við hana samband í síma 691-3214 eða ræða við lögreglu.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira