Felix og Greifarnir mætast í Popppunkti 28. apríl 2011 19:00 Dr. Gunni segir að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af hlutleysi Felix þegar Greifarnir mæta; hann ráði hvort eð er engu í þáttunum. „
Við Felix [Bergsson] erum byrjaðir að bóka, það verða ýmsar kempur í þessum þáttum sem hafa ekki verið áður," segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Upptökur á sjöundu seríunni af Popppunkti hefjast 18. maí en þættirnir fara í loftið hinn 28. maí. Þessi spurningakeppni íslenskra poppara hefur notið mikilla vinsælda, meira en hundrað þættir hafa verið framleiddir og það verður enginn hörgull á stórstjörnum í þessari þáttaröð. Meðal þeirra sem taka þátt eru reynsluboltarnir í Mezzoforte en Gunnar tekur skýrt fram að þar sé um upphaflega liðsskipan að ræða. Þá hyggjast þungarokkarnir í Skálmöld og blússveitin Klassart láta ljós sitt skína, sem og Todmobile, en sú sveit skartar nú nýjum Eyþóri í broddi fylkingar, Eyþóri Inga sem sigraði bæði í Ladda-eftirhermukeppninni og Bandinu hans Bubba. Ekki má heldur gleyma Stjórninni, hljómsveitinni Valdimar, Melchior og leikkvennahljómsveitinni Heimilistónum. Stóru tíðindin eru hins vegar þau að Greifarnir ætla að láta reyna á þekkingu sína og verður forvitnilegt að sjá þegar Felix og hljómsveitin endurnýja kynnin. Felix var sem kunnugt er söngvari sveitarinnar á velmektarárum hennar. „Hlutleysi spyrils verður ekkert hægt að draga í efa, Greifarnir eru fyrir löngu búnir að losa sig við Felix og svo ræður hann engu í þáttunum," segir Dr. Gunni.- fggGreifarnir eins og einhverjir muna best eftir þeim.
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira