200 menntaskólanemar strandaglópar - fyrsti skóladagur á morgun Valur Grettisson skrifar 22. ágúst 2013 12:20 Nemendaráð MR. Á myndinni eru f.v. Ólafur Kári, Aldís Mjöll, Birna Ketilsdóttir, Inspector Scholae, Rakel Björk og Jón Ingvar en öll sitja þau í stjórn Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík. „
Fyrsti skóladagurinn er á morgun, og þá mun vanta heilan árgang,“ segir Birna Ketilsdóttir, Inspector scholae hjá Menntaskólanum í Reykjavík, en hún er ein af 200 nemendum sem eru strandaglópar á grísku eyjunni Krít eftir tíu daga ferð útskriftarárgangs skólans. Flugvél á vegum Heimsferða bilaði með þeim afleiðingum að nemendurnir þurfa að dvelja aðra nótt í Grikklandi. Þau fengu fregnirnar eftir að þau skráðu sig í flugið í dag. „Við fengum fyrst að vita það eftir að við tjékkuðum okkur út af hótelinu að það væri fjögurra tíma seinkun á fluginu, svo sex tíma seinkun. Nú er ljóst að við fljúgum ekki heim fyrr en á morgun,“ segir Birna sem bætir við að nemendurnir muni líklega fara aftur á sama hótel og þau gistu á í fríinu. Þau mega þó búast við því að vera fleiri í herbergi í ljósi þess að búið er að bóka einhver herbergi. „Þetta er svolítið óþægilegt,“ segir Birna sem er samt jákvæð. Hún bendir þó á að seinkunin hafi farið illa í suma foreldra, auk þess sem það verður léleg mæting á fyrsta skóladeginum í Menntaskólanum í Reykjavík á morgun. „En við erum samt búin að láta skólann vita,“ segir hún. Aðspurð um kostnað vegna aukadagsins svarar Birna því að hún viti ekki betur en að samkvæmt neytendalögum þurfi ferðaskrifstofan að standa straum af stærstum kostnaði vegna gistingar og uppihalds. „Annars erum við bara á leiðinni niður i bæ, og sjáum til hvernig það spilast úr þessu,“ segir hún bjartsýn að lokum.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Erlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Innlent Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Innlent Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Sjá meira