FKA heiðrar þrjár athafnakonur Stefán Árni Pálsson skrifar 29. janúar 2015 19:16 Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir, Guðný Guðjónsdóttir og María Rúnarsdóttir mynd/aðsend
FKA, Félag kvenna í atvinnulífinu, afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs í Hörpu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FKA en Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður félagsins ávarpaði gesti og bauð þá velkomna en að því búnu afhenti Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra þremur athafnakonum sérstakar viðurkenningar. FKA viðurkenninguna 2015 hlaut Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir, einn aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja. Guðbjörg er fædd og uppalin í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands lá leið hennar í Kennaraháskóla Íslands. Hún útskrifaðist sem kennari vorið 1976 og giftist Sigurði Einarssyni, lögfræðingi og þáverandi forstjóra Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja og síðar Ísfélags Vestmannaeyja sem er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Árið 2000 var ár áfalla í lífi Guðbjargar, fjölskyldu hennar og sögu Ísfélagsins. Í október það ár féll Sigurður frá – og tveimur mánuðum síðar brann nýtt og glæsilegt frystihús félagsins. Að sögn Guðbjargar kom samt aldrei annað til greina en að halda ótrauð áfram. „Bæði fjölskyldunnar og bæjarfélagsins vegna. Þetta var einn af fjölmennustu vinnustöðunum í Vestmannaeyjum og ekki annað í boði en að taka við kyndlinum og reka fyrirtækið áfram,“ segir Guðbjörg. Hvatningarviðurkenninguna hlaut María Rúnarsdóttir einn stofnenda Mint Solutions. Segja má að María hafi fengið frumkvöðlaeðlið í vöggugjöf. Faðir hennar, Rúnar Sigurðsson, oftast kenndur við Tæknival, er frumkvöðull á sínu sviði og dóttirin stóð varla fram úr hnefa þegar hún fór að láta til sín taka í fyrirtækinu. Byrjaði á að sópa gólfin en eftir því sem árunum ... og sentímetrunum fjölgaði ... urðu verkefnin sífellt vandasamari. Þegar kom fram á unglingsár var hún orðin staðráðin í að stofna sitt eigið fyrirtæki bara um leið og henni dytti eitthvað sniðugt í hug. Þakkarviðurkenninguna hlaut Guðný Guðjónsdóttir, eigandi Mokka-Kaffi. Það er ekki bara Félag kvenna í atvinnulífinu sem stendur í þakkarskuld við Guðnýju Guðjónsdóttur. Nafn hennar og fyrirtæki er samofið íslenskri menningu; á sér öruggan stað í hjarta listamanna landsins sem og listunnenda – sælkera, stúdenta og hvers kyns spekúlanta. Það er nánast óhætt að fullyrða að mikill meirihluti borgarbúa beri sterkar taugar til fyrirtækisins ... og sé henni og fjölskyldu hennar óendanlega þakklát fyrir framlag þeirra til menningarlífsins í víðustu merkingu þess orðs.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Sjá meira