Lífið

Jólin koma í kvöld - X-mas í níunda sinn

Mugison er einn þeirra sem kemur fram í kvöld.
Mugison er einn þeirra sem kemur fram í kvöld. MYND/GUÐNI
Rjómi íslensks rokkheims kemur fram á árlegum jólatónleikum X-ins - X-mas - sem verða haldnir á Gauki á Stöng í kvöld. Gaukurinn opnar klukkan 19. og stígur fyrsta hljómsveitin á svið klukkan 20.

Þeir sem koma fram eru Mugison, Sprengjuhöllin, Hjaltalín, Jakobínarína, Dr. Spock, Sign, Ultramegatechnobandið Stefán, Lada Sport, Hooker Swing, Our Lives, Strigaskór nr. 42 og Minna en 3 Svanhvít, en síðastnefnda bandið kemur í stað Seabear, sem forfallaðist vegna hálssýkingar söngvarans.

Miðaverð á tónleikana er 977 kr og rennur allur ágóði til Foreldrahúss. Kaupþing greiðir auk þess 500 með hverjum miða sem er greiddur með Kortinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.