Ronaldinho sá besti í heimi 2004 20. desember 2004 00:01
Brasilíski snillingurinn Ronaldinho var í gær útnefndur besti knattspyrnumaður heims hjá FIFA fyrir árið 2004 en hann var efstur í kjöri landsliðsþjálfara og fyrirliða landsliða heims.Samskonar verðlaun voru einnig afhent hjá konunum og þar var þýska knattspyrnukonan Birgit Prinz valin best annað árið í röð. Alls kusu 157 landsliðsþjálfarar og 145 fyrirliðar að þessu sinni en Ronaldinho fékk 68 fleiri atkvæði en Frakkinn Thierry Henry sem þarf að sætta sig við annað sætið í kjörinu annað árið í röð. Ronaldinho fékk 620 atkvæði, Henry var með 552 en í þriðja sæti var síðan Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko sem var í síðustu viku valinn besti Knattspyrnumaður Evrópu af franska tímaritinu France Football en bæði Ronaldinho og Henry voru gjaldgengir í því vali. Andriy Shevchenko fékk mun færri atrkvæði en þeir félagar eða alls 253. Nú hafa fjórir Brasilíumenn verið kosnir bestu knattspyrnumenn heims í 14 ára sögu útnefningarinnar og allir byrja þeir á R og ganga aðeins undir einu nafni þau auk Ronaldinho í gær þá hafa Ronaldo (1996, 1997 og 2002), Rivaldo (1999) og Romario (1994) fengið þessi virtu verðlaun. Ronaldino, sem er 24 ára, sló í gegn með Barcelona en hann gekk til liðs við liðið í upphafi ársins og valdi frekar að fara þangað en til Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. "Ég vil fyrst og fremst þakka félögum mínum hjá Barcelona því ég hefði aldrei getað náð þessu takmarki án þeirra," sagði Ronaldinho sem var settur í fyrsta sæti hjá 89 af landsliðsþjálfurnum og fyrirliðunum en Henry var 79 sinnum í efsta sæti. Þetta var ennfremur í fyrsta sinn síðan 2000 að besti leikmaður heims leikur ekki með spænska stórliðinu Real Madrid. Zinedine Zidane hlaut þessi verðlaun í fyrra en hann var að þessu sinni í fjórða sæti en fimmti var síðan Pavel Nedved miðjumaður Juventus og fyrirliði tékkneska landsliðsins. Þýska knattspyrnukonan Birgit Prinz valin best annað árið í röð en bandaríska knattspyrnukonan Mia Hamm, sem hlaut verðlaunin í tvö fyrstu skiptin sem þau voru afhent, varð í öðru sæti og þriðja varð síðan sú brasilíska Marta.
Íslenski boltinn Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Fleiri fréttir Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Sjá meira