Landsliðið niður um 37 sæti 20. desember 2004 00:01
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu lækkaði sjöunda mánuðinn í röð á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem var birtur í gær og er nú komið niður í 93. sæti á listanum. Fyrir þetta ár hafði íslenska landsliðið aldrei verið neðar en 88. sæti á listanum en tveir síðustu mánuðir hafa verið þeir tveir verstu í sögu íslenska landsliðsins á þessum lista. Meðal þjóða sem við höfum misst upp fyrir okkur á síðustu mánuðum eru þjóðir eins og Tógó, Angóla, Kenía, Gvæjana og Sýrlandi sem öll teljast á mælikvarða FIFA vera með betri knattspyrnulandslið en Íslendingar í dag. Íslenska liðið komst hæst í 42. sæti í janúar 2000 en var í 58. sæti í ársbyrjun á umræddum lista og hefur fallið um heil 35 sæti á þessum tólf mánuðum, þar af niður um 37 sæti frá því í maí þegar íslenska liðið var í 56. sæti á listanum. Íslenska landsliðið hefur nú farið niður um sæti á listanum sjö mánuði í röð en engin önnur þjóð hefur fallið hraðar niður listann á þessu ári eða fallið niður listann svo marga mánuði í röð. Næst okkur í falli niður FIFA-listann af Evrópuþjóðunum kemur landslið Skotlands sem hefur fallið um 32 sæti á árinu. Íslenska landsliðið vann aðeins einn af níu landsleikjum sínum á árinu, töpin urðu sex, þar af fimm þeirra í sjö landsleikjum frá því í lok maí. Af gengi hinna liðanna í riðli Íslands er það frétt að Svíar hækka sig um tvö sæti upp í það 13., Króatar og Búlgarir standa í stað, Króatar í 23. sætinu og Búlgarir í því 37. Ungverjar eru á mikilli siglingu og fara upp um tíu sæti upp í það 74. en Maltverjar lækka síðan um tvö sæti og fara niður í 134. sæti listans. Fall íslenska liðsins á síðustu mánuðum: Maí 2004: 56. sæti Júní 2004: 65. sæti (-9 sæti) Júlí 2004: 75. sæti (-10 sæti) Ágúst 2004: 79. sæti (- 4 sæti) September 2004: 80. sæti (- 1 sæti) Október 2004: 88. sæti (-8 sæti) Nóvember 2004: 90. sæti (-2 sæti) Desember 2004: 93. sæti (- 3 sæti)
Íslenski boltinn Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Holland - Svíþjóð | Mikið undir í evrópskum slag Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Sport Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Holland - Svíþjóð | Mikið undir í evrópskum slag Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Sjá meira