Lífið

Madonna, Bruce Willis og lifrarbólgan

Þær hafa kannski haldið að þær væru lentar í þætti af Punk'd, stjörnurnar sem mættu í þrítugsafmæli Ashtons Kutcher á dögunum.

Nokkrum dögum eftir afmælið fengu þær bréf þess efnis að þær ættu að drífa sig til læknis að fá bólusetningu gegn lifrarbólgu A. Meðal þeirra sem voru í veislunni voru eiginkonan Demi Moore, Madonna, Bruce Willis, Gwyneth Paltrow og Salma Hayek.

Ástæðan mun vera að einn af barþjónunum á Socialista þar sem Kutcher hélt upp á afmælið er smitaður.

Lifrarbólga A er mun auðveldari viðureignar en frænka hennar C, en getur þó ef ekkert er að gert valdið fjölda einkenna á borð við ógleði og þreytu, og farið mjög illa með ónæmiskerfið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.