Lífið

Britney framlengir nálgunarbann á Sam Lutfi

Illmennið meinta í harmsögu Britney Spears, Sam Lutfi, fékk reisupassan formlega í gær. Þá náðist loksins að afhenda honum pappíra um framlengingu nálgunarbanns sem meinar honum að koma nær Britney en sem nemur 250 metrum.

Sam hafði náð að forðast stefnuvottana í meira en 200 klukkustundir þegar þeir náðu honum loks fyrir utan heimili sitt í gær.

Samkvæmt nálgunarbanninu þarf Lutfi að láta af öllum tilraunum til að hafa samband við hana, einnig símleiðis, þangað til 17. mars. Þetta er ekki eina lögfræðivandamál „umboðsmannsins" fyrrverandi. Lögregla í Kaliforníu rannsakar nú ásakanir þess efnis að hann hafi gefið Britney aðeins meira af lyfjum en hún þurfti á að halda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.