Ólafur Ragnar ræddi aðgerðir gegn loftslagsbreytingum 22. febrúar 2008 14:29 Ólafur Ragnar Grímsson. MYND/GVA
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flutti í gær erindi um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum á málþingi sem fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum efndi til í höfuðstöðvum samtakanna í New York. Auk Ólafs flutti Leena Srivastava, einn aðalhöfundur skýrslu Vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, einnig erindi á málþinginu. Á málþinginu fjallaði Ólafur Ragnar um hvernig loftlagsbreytingar birtist jarðarbúum og nefndi hann sérstaklega bráðnun jökla í Himalayafjöllum. Þá lýsti hann því hvernig Íslendingar hefðu gert breytingar á orkunýtingu landsins á æviskeiði einnar kynslóðar og sagði að Íslendingar gætu orðið öðrum þjóðum hvatning. „Að loknu málþinginu sátu forseti Íslands og Leena Srivastava fyrir svörum á blaðamannafundi sem haldinn var í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Í kjölfar blaðamannafundarins átti netsjónvarpsmiðillinn Icastnews viðtal við forseta Íslands og má nálgast þær samræður á netslóðinni www.icastnews.com," segir í tilkynningu frá forsetaembættinu. „Forseti Íslands rakti í erindi sínu hvernig loftslagsbreytingar birtast okkur í bráðnun jökla og heimsskautaíss. Nefndi hann sérstaklega hraðar breytingar á jöklum í Himalayafjöllunum sem geta haft hrikalegar afleiðingar fyrir lífsskilyrði rúmlega milljarðs jarðarbúa, einkum í Indlandi og Kína. Brýnt væri að bregðast við loftslagsbreytingum og án uppstokkunar á orkukerfum heimsins frá olíu og kolum yfir í hreina orku yrði ekki hægt að koma í veg fyrir hinar ógnvekjandi afleiðingar loftslagsbreytinga. Um víða veröld væri nú kallað eftir lausnum," segir einnig. Ólafur sagði að Ísland hefði sýnt hvað hægt væri að gera og rakti breytingar sem orðið hefðu á orkunýtingu landsins á æviskeiði einnar kynslóðar og rökstuddi hvernig reynsla Íslands gæti orðið öðrum ríkjum hvatning til árangursríkra aðgerða. „Þá lýsti forseti hvernig breytingar á hönnun og orkunýtingu bygginga gætu orðið mikilvægt framlag til lausnar og nefndi sem dæmi nýja skrifstofubyggingu í Leeds sem dótturfyrirtæki Eimskips opnaði á síðasta ári og nýja þjóðarbókhlöðu í Singapore. Einnig væri nauðsynlegt að endurskipuleggja iðnaðarframleiðslu með tilliti til orkunýtingar og virkja krafta atvinnulífs og fyrirtækja. Rannsóknir hefðu sýnt að hægt væri að ná verulegum orkusparnaði með breyttu framleiðsluskipulagi." Þá kom fram í máli hans að vísindasamfélagið teldi að jarðarbúar hefðu aðeins örfáa áratugi til að koma mótaðgerðum í framkvæmd. Endalok kalda stríðsins sem hófust með leiðtogafundi Gorbachevs og Reagans sýndu að hægt væri að umskapa heimsmyndina á skömmum tíma. Því væri forseti bjartsýnn á að unnt væri að ná viðunandi árangri. „Leena Srivastava rakti í sínu erindi hvaða áhrif loftslagsbreytingar myndu hafa á lífsskilyrði milljarða íbúa í þróunarlöndum, einkum Asíu og Afríku, og lýsti fjölþættum aðgerðum sem væru nauðsynlegar. Að loknum erindunum svöruðu þau bæði fyrirspurnum frá sendiherrum og fulltrúum fjölmargra ríkja sem sátu málþingið," segir að lokum í tilkynningunni.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Sjá meira