Lífið

„Eurovision 2009 verður haldin í Kórnum"

Kosningabaráttan fyrir úrslitakvöld undankeppni Evróvisjón á Laugardag harðnar. Nú hafa þeim Merzedes Club liðum borist liðsinni frá fræga fólkinu. Myndband þar sem Pétur Jóhann, Sveppi, Auddi og knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson lýsa yfir stuðningi við lagið er nú að finna á YouTube.

Egill „Gillz" Einarsson, einn forsprakka sveitarinnar, segir þá félaga afar hrifna af laginu, enda sé það stórgott, með afar grípandi texta.

Þeim Merzedes-mönnum er full alvara með framlaginu, og leiðist samanburðurinn við Silvíu Nótt. „Við leggjum mikinn metnað í þetta. Við ætlum ekkert að haga okkur eins og fífl þarna úti og verða þjóðinni til skammar" segir Egill, sem ætlar alla leið með lagið. „Eurovision 2009 verður haldið í Kórnum í Kópavogi ef við förum út."

Metnaðurinn nær ekki bara til söngæfinga og tónlistanáms. „Liturinn þarf að smella. Við vorum of brúnir síðast og ætlum ekki að láta það ekki gerast aftur," segir Egill, sem hefur þó langt því frá lagt vaxtarræktarbrúnku brúsann frá sér. „Það var ein umferð í gær, ein í dag, og önnur á morgun," segir Egill um smurningsáætlunina. Hann bætir við að það sé þó helmingi minna en síðast.

Hljómsveitameðlimir fara einnig stækkandi, og hafa þeir gegnum stíft matarræði og æfingar undanfarið náð að bæta á sig um þrjátíu og fimm kílóum samtals. Kjúklingabringuátið er þó farið að verða þreytandi, og segist Egill hreinlega ætla að leggjast í sorpfæðispyttinn á sunnudaginn. „Það verður sukkað á sunnudaginn," segir Egill, og nefnir þrjár pizzur, tíu hamborgara og tíu lítra af ís, sem mögulegan dagskammt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.