Mótvægisaðgerðir ræddar að nýju vegna veiðistöðvunar 22. febrúar 2008 14:21 Árni Mathiesen fjármálaráðherra.
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir ljóst að ríkisstjórnin muni ræða mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á aflamarki. Loðnuveiðar voru stöðvaðar á hádegi í gær, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Árni segist þó bjartsýnn á að loðnan muni koma aftur upp á grunnin. „Ef hún á annað borð er í sjónum að þá kemur hún aftur upp á grunninn við Suðurlandið til þess að hrygna. Og aðalatriðið er þá að vera tilbúinn til þess að mæla og gefa út nýjan kvóta," segir Árni. Hann segir að ef það gerist ekki þá sé um að ræða mikinn vanda á tilteknum stöðum. „Þá er í sumum tilfellum um sömu staðina að ræða og eru í vandræðum vegna þorskniðurskurðarins. Og við verðum að skoða þau mál þá í því ljósi, " segir Árni. Árni segir nauðsynlegt að stunda góðar mælingar til þess að hægt sé að gefa út kvóta. Hins vegar sé svo mikil bræla á miðunum þessa dagana að skip Hafrannsóknarstofnunar hafi ekkert að gera á miðunum. Bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum segir að tekjutap sveitarfélagsins vegna stöðvunar á loðnuveiði sé tæpir 4 milljarðar og vill að látið verði af öllum handaflsaðgerðum í sjávarútvegi, fræðasvið sjávarútvegs verði styrkt, hafrannssóknir efldar, að hafnaraðstaða verði byggð upp í Eyjum og að hvalveiðar verði hafnar af fullum þunga. Árni segir að bæjarstjórinn hafi kynnt sér tillögurnar í gær og þeir muni ræða tillögurnar frekar.
Mest lesið Selenskí kíkti á klakann Erlent Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira