Innlent

Morgundagurinn er vinsælasti brúðkaupsdagur ársins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjölmörg pör verða gefin saman á morgun.
Fjölmörg pör verða gefin saman á morgun. Mynd/ Brink

Á morgun er 7. dagur júlímánaðar eða 07.07.07. Búist er við að mörg brúðhjón verði gefin saman á þessum degi en nokkrir hafa þurft að hverfa frá vegna þess að skortur er á veislusölum.

Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík, segist vera með fjórar eða fimm hjónavígslur bókaðar. Upphaflega hafi tíu pör verið bókuð en helmingurinn hafi hætt við fyrirhuguð brauðkaup vegna þess að þeim hafi ekki reynst unnt að fá sali fyrir brúðkaupsveislur. Hjörtur Magni segir að hjónavígsla sé rúmur hálftími að lengd. Það fari eftir hversu mikil tónlist sé í athöfninni. Hann segir að það sé ekkert of mikið að gefa saman fimm pör á einum degi, allir fái að njóta sín.

Í sama streng tekur Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaðarkirkju. Hann mun gefa saman fimm brúðhjón á morgun. Hann segir dagsetninguna vera skemmtilega en hún virðist samt ekkert til þess fallin að fjölga brúðkaupum neitt sérstaklega. Á fyrstu heilu helginni í júlí sé ávallt mikið um brúðkaup. Árið í ár sé ekkert frábrugðið fyrri árum. Pálmi segir að sér finnist mjög gefandi að taka þátt í þessum athöfnum og hann fyllist orku við það. Það sé stórkostlegt að fá að taka þátt í svona stórum áfanga í lífi fólks. Hann sé miklu frískari eftir mörg brúðkaup en fá.

Þess má svo til gamans geta að NBA stjarnan Tony Parker og Eva Longoria, stjarnan úr Aðþrengdum eiginkonum, eru meðal þeirra fjölmörgu para sem láta gefa sig saman á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×