Methiti á Vestfjarðakjálkanum 13. ágúst 2004 00:01
Methiti mældist víða á Vestfjarðakjálkanum í gær og fór hitinn í 26 stig á Ströndum. Hlýrra var norðan en sunnan heiða. Veðurhorfurnar fram undan eru ágætar þrátt fyrir að hitabylgjan sé í rénun. Óvenju þung umferð miðað við árstíma. Methiti mældist víða á Vestfjarðakjálkanum í gær þegar hitabylgjan lét til sín taka. 26 stiga hiti mældist á Litlu-Ávík á Ströndum og 24,3 stiga hiti í Bolungarvík, að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings. Hlýrra var fyrir norðan en sunnan heiða að sögn Þorsteins og fór hitinn hæst í 28,5 stig á Reykjum í Fnjóskadal. Hlýtt var einnig í veðri á Akureyri, þar sem hitinn komst hæst í 24 stig í gær. Þoka gerði vart við sig suðvestanlands í gær, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, og undir kvöld voru þokubakkar einnig farnir að láta sjá sig fyrir utan Austfirði. Horfur eru á ágætu veðri fram undan þrátt fyrir að hitabylgjan sem leikið hefur um landsmenn síðustu dagana sé í rénun, að sögn Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfræðings. Sigurður á enn von á góðviðri í dag en býst við að á sunnudag taki venjulegra veður við. Horfurnar séu þó í sjálfu sér mjög góðar, hægviðri eða hafgola og víða bjart með köflum. Besta helgarveðrinu býst Sigurður við austan- og suðaustantil á landinu. Ekki er búist við meiriháttar úrkomu í næstu viku. "Búast má við stöku síðdegisskúrum á sunnanverðu landinu á sunnudag og hugsanlega lítilsháttar úrkomu sunnan- og vestantil á mánudag," segir Sigurður. "Þetta verður þó minniháttar úrkoma ef fer sem horfir." Óvenju þung umferð var í báðar áttir frá Reykjavík að sögn lögreglunnar í Borgarnesi og á Selfossi. "Umferðin dettur venjulega niður strax eftir verslunarmannahelgina," segir Grímur Hergeirsson, varðstjóri á Selfossi. "Í ár virðast menn hins vegar vilja bæta einni ferðahelgi við vegna góða veðursins."
Fréttir Innlent Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Fleiri fréttir Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvað er sólmyrkvi? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Sjá meira