Sparnaðurinn skilar sér 13. ágúst 2004 00:01
Skurðaðgerðum á Landspítala fjölgaði á fyrri helmingi þessa árs og meðallegutími styttist. Heildarkostnaður við lyf er í samræmi við áætlun. Launakostnaður hefur lækkað. Rekstur LSH eftir hálft ár sýnir 109,5 milljónir umfram fjárheimildir tímabilsins eða 0,8%. Þetta kemur fram í rekstraruppgjöri spítalans fyrir janúar-júní, sem birt var í gær. "Ég er mjög ánægður með þetta," sagði Magnús Pétursson, forstjóri LSH. "Við erum að auka starfsemi spítalans með sama, jafnvel minna fjármagni, en á síðasta ári. Við höfum rekið þennan spítala undanfarin fimm ár með sömu raunkrónum. Nú er að skila sér þetta puð sem menn hafa verið í við að halda aftur af útgjöldum." Á síðustu tólf mánuðum hefur dagvinnustöðugildum á spítalanum fækkað um 126 og vöktum verið fækkað. "Launatölur spítalans eru nú innan við hækkanir sem almennt gerast," sagði Magnús enn fremur. "Lyfjalistar, lyfjaútboð og aðhald á nýjum lyfjum eru aðgerðir sem hemja útgjöld. Þetta er að skila fínum árangri og ég er mjög ánægður með þessa útkomu." Samkvæmt rekstraruppgjörinu fjölgaði skurðaðgerðum á LSH um 3,4% frá fyrra ári að meðtöldum dagdeildaraðgerðum á augum. Sú fjölgun skilar sér beint í fækkun á biðlistum eftir þjónustu spítalans. Hins vegar varð fækkun í hjartaþræðingum, kransæðavíkkunum og gangráðsígræðslum, en fjölgun í öðrum þáttum hjartalækninga. Þar eru biðlistar nánast búnir. Legudögum fækkaði um 7,0% og meðallegutími styttist úr 8,8 dögum í 8,1. Komum á göngudeildir fjölgaði um 9,3% milli ára, en fækkaði um 2,1% á dagdeildum. Aðeins tvö svið á spítalanum eru með 4% umfram áætlaðan kostnað. Það eru lyflækningasvið I með 6,9% og Rannsóknarstofnun LSH með 4,7% umfram áætlun. Sérstök úttekt var gerð á greiðslum launatengdra gjalda 2001-2004. Um er að ræða hækkuð mótframgjöld í séreignarlífeyrissjóði og aukna þátttöku starfsmana í þeim, svo og hækkun tryggingargjalds. Þessi gjöld hafa aukist jafnt og þétt á milli ára úr 17,32% í 19,41%. Þetta þýðir að spítalinn verður fyrir 340 milljóna króna viðbótarkostnaði, "sem ekki hefur verið viðurkennt af stjórnvöldum," eins og segir í greinargerð með rekstraruppgjörinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira