Blint bónorð á aðfangadagskvöld Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 29. mars 2014 15:00 Mynd/Anna Ólöf Kristjánsdóttir
Hugblær miðalda sveif yfir vötnum þegar leikarinn Erlendur Eiríksson og Fjóla Einarsdóttir þróunar- og stjórnmálafræðingur gengu í heilagt hjónaband í sumarskrúða borgfirskrar náttúru. Gullbryddaður brúðarkjóll Fjólu var handsaumaður í Senegal. „Við kynntumst í búningapartíi þar sem ég var máluð sem svört kona í gordjöss, senegölskum kjól en Erlendur var íklæddur skotapilsi. Það var ást við fyrstu sýn og síðan höfum við ekki sleppt hvort öðru,“ segir Fjóla um örlagaríkt fertugsafmæli sameiginlegrar vinkonu þeirra Erlends. „Við vissum frá fyrstu stundu að þetta væri stóra ástin í lífinu,“ segir Fjóla sem átta mánuðum síðar fékk rómantískt bónorð. „Erlendur bað mín á aðfangadagskvöld 2012, eftir jólastundir með stórfjölskyldunni. Þá batt hann fyrir augu mér og keyrði langt út í buskann, að mér fannst, en reyndist vera akstur upp og niður Öskjuhlíð. Bíllinn stöðvaðist svo við Hótel Natura þar sem blikandi kertaljós lýstu upp bleiku svítuna og þar kraup Erlendur og bað mín með gullhringa í öskju. Ég játaðist honum auðvitað strax og við áttum jólanóttina í svítunni.“ Brúðarkjóll frá Afríku Undirbúningur að brúðkaupinu hófst fljótt og var brúðkaupsdagurinn ákveðinn 20. júlí í fyrra. „Við erum bæði hrifin af búningum og sérstaklega heilluð af klæðaburði miðalda,“ segir Fjóla um klæðaburð gestanna sem fengu boð um að mæta í búningum frá 14. til 18. aldar. „Ég átti kynstrin öll af miðaldalegu efni í bláum og grænum lit sem ég ætlaði að nota í dúka en endaði með að sauma úr þrettán brúðarmeyjakjóla á vinkonuhópinn. Á vini brúðgumans voru svo saumaðar skikkjur með hettum og saman stóðu þau heiðursvörð.“ Fjóla bjó og starfaði í Senegal áður en hún kynntist Erlendi og lét sauma á sig brúðarkjólinn þar. „Í Senegal eru litlar saumastofur á hverju horni og afríkst handverk óskaplega fagurt. Ég sendi því málin mín út ásamt skýringarmynd og efni og sex vikum síðar kom kjóllinn heim og smellpassaði á mig,“ segir Fjóla um gullfallegan brúðarkjólinn. Erlendur klæddist skyrtu í stíl breskra hefðarmanna á miðöldum, vesti og gulum buxum. „Skyrtuna saumaði móðir hans heitin fyrir lokaverkefnið í leiklistarskólanum og í raun merkilegt að hafa átt svo hjartfólgna hluti úr fortíðinni sem hæfðu þema miðaldabrúðkaupsins. Þannig drukkum við brúðarskál úr bikurum sem ég gaf foreldrum mínum í brúðkaupsafmælisgjöf, þá tíu ára.“Erlendur og Fjóla, nýgift og hamingjusöm, með veislustjórunum Brynju Valdísi Gísladóttur leikkonu og Sesselju Thorberg innanhússhönnuði.mynd/Anna Ólöf KristjánsdóttirHressandi og rómantískt Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson gaf Fjólu og Erlend saman í Reykholti en brúðkaupsveislan var haldin á Bifröst. „Brúðkaupsdagurinn var fullkominn og undirbúningur hans endalaust ævintýri,“ segir Fjóla. „Þannig fór ég á miðnætti undir Snæfellsjökul að sækja Djúpalónsperlur fyrir borðmerkingar og Erlendur útbjó brúðarvöndinn úr blómum úr náttúru Bifrastar.“ Þegar athöfnin hófst gengu hettuklæddir menn inn kirkjugólfið undir þunglamalegri tónlist kantötunnar Carmina Burana. „Það var til gamans gert og fór uggur um kirkjugesti en við tók glaðlegur brúðarmars í flutningi dóttur brúðgumans og vinkonu hennar á harmóníku og horn.“ Í kirkjunni söng Erlendur þrjú lög til eiginkonu sinnar og sem hjón gengu þau út syngjandi og allir tóku undir: „Líttu á lífsins björtustu hlið“, sem frægt var með Monty Python-genginu. „Athöfnin var bæði hressandi og rómantísk. Ég fann svo vel að ég var að gera rétt og vöknaði um augu þegar presturinn talaði um þýðingu hjónabandsins. Þá brynntu margir músum þegar Erlendur söng til mín, en aðallagið var Space Oddity eftir David Bowie þar sem kunnugir vita að ég hef verið Lady Stardust frá unglingsaldri.“ Ástarbarn fætt Brúðkaupsveislan stóð fram á rauðamorgun og kvöddu brúðhjónin veislugesti á sjöunda tíma morgunsársins. „Upp úr stendur hamingjan og gleði ástvina. Úr brúðkaupinu fórum við í rómantískt sumarhús og áttum þar fáeina hveitibrauðsdaga, en síðar í brúðkaupsferð og dekur til Krítar sem við unnum í brúðkaupsleik Rásar 2.“ Fjólu finnst miklu muna fyrir þau Erlend að vera orðin hjón. „Maður skynjar svo vel að hjónabandið er til lífstíðar og að saman munum við ganga í gegnum súrt og sætt. Hjónabandinu fylgir líka meiri nánd og öryggiskennd; það kvikna nýjar tilfinningar og annar hugsunarháttur. Þegar maður hefur svo eignast ástarbarn í þokkabót erum við orðin sannkölluð fjölskylda,“ segir Fjóla sem á hveitibrauðsdögunum uppgötvaði að hún væri barnshafandi. Fyrir átti hún tvítugan son og Erlendur fimmtán ára dóttur en í mars fæddist þeim ástarbarnið Eiríkur Sæberg.
Mest lesið Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Lífið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Lífið Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Lífið Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Menning „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Lífið Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Gagnrýni „Bannað að reikna hvað Aron var gamall þegar við byrjuðum saman“ Lífið Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Lífið Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Lífið Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni Lífið Fleiri fréttir Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Kvenskælingar svekktir eftir að hafa lent í hakkavél MR tvisvar í röð Heated Rivalry-stjörnur verða á Ólympíuleikunum Fengu gefins sjö nýjar þrautir frá breska þrautahöfundinum Mari og Njörður eiga von á sumarbarni Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Désirée prinsessa látin Staðgöngumóðir „öruggasta leiðin“ til að stækka fjölskylduna Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Kynntist manninum á Tinder í Covid Vance á von á barni Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Ótrúlegur dagur Vignis: Lottóvinningur, 180 í pílu og sigur á Carlsen Vesturbæingar blótuðu þorrann langt fram á nótt Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ „Ég hef aldrei séð dansandi poka“ Eldri bróðir lagði línur að lífinu í New York Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Fagna tíu árum af ást Þekkja Kringlugestir borgarstjórann? Sjá meira