Geta misst allt að 2 mánuði úr 30. september 2005 00:01
Hjartveik börn geta misst allt að tveimur mánuðum á ári úr skóla án þess að þeim sé bætt það upp. Margrét Ragnars, formaður Neistans, segir að það fari eftir skólum hvort börnin fái aukakennslu eða ekki. Langveik börn sem eru frá námi í tvo mánuði samfleytt eða lengur fá kennslu í staðinn. Hjartveiku börnin hafa sérstöðu miðað við önnur langveik börn því að þau eru ekki endilega samfleytt frá námi. Þau eru kannski á spítala vegna hjartaaðgerðar í tvær eða þrjár vikur og liggja svo heima í nokkra daga eða vikur. Þegar þau eru byrjuð aftur í skólanum er alltaf sýkingarhætta fyrir hendi auk þess sem þau eru veikari fyrir en önnur börn og geta því verið mikið frá skóla vegna veikinda. Samkvæmt grunnskólalögum eiga langveik börn að fá kennslumissi bættan en það virðist hafa verið túlkað þannig að það gildi bara um börn sem eru tvo mánuði samfleytt frá námi. Það fer því fyrst og fremst eftir skólum, skólastjórum og umsjónarkennurum hvort hjartveikum börnum er bættur upp námsmissirinn eða ekki. Aðspurð hversu mikil áhrif það hefur á barn að missa tvo mánuði úr skóla, segir Margrét Ragnars, formaður Neistans, að áhrifn séu veruleg. Allur missir úr skóla hafi einhver áhrif og tveir mánuðir á ári geti haft mjög varanleg áhrif ef kennslan sé ekki bætt upp. Margrét segist vilja sjá þær úrbætur að meðvitund sé um það í skólakerfinu að fyglst sé með hjartveikum börnum ef þau fari að dragast aftur úr og að þeim verið mætt á sem bestan hátt. Eins sé mikilvægt að ferli sé innan skólanna þar sem allir kennarar viti að það sé hjartveikt barn í skólanum og það geti komið eitthvað upp á hjá því og það sé þá brugðist rétt við því.
Fréttir Innlent Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira