Orkustofnun langar að virkja í túngarðinum hjá umhverfisráðherra Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 1. febrúar 2015 20:42
Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra segir það hafa komið mjög á óvart, þegar Orkustofnun lagði til að skoðaður yrði virkjunarkostur í túngarðinum hjá henni og eiginmanninum, Páli Péturssyni í landi Höllustaða.Verkefnisstjórn um rammaáætlun tilkynnti fyrir helgi að hún myndi ekki skoða svæði sem Orkustofnun lagði til að eigin frumkvæði að hún myndi meta. Lögfræðingur Orkustofnunar var ekki sáttur og sagði þetta undarlega stjórnsýslu svo ekki væri dýpra í árinni tekið. Meðal þessara svæða voru virkjunarkostir sem höfðu lent í verndarflokki en ekki verið friðlýstir. Umhverfisráðherra segist ekki hafa verið hrifin. Henni finnist ekki að leggja eigi til kosti sem er búið að ákveða að vernda. Það var þó sérlega einn kostur sem kom ráðherranum óþægilega á óvart ef svo má segja nefnilega Blöndudalsvirkjun sem felur í sér að áin Blanda verði stífluð, nánast í túnfætinum hjá henni og eiginmanninum Páli Péturssyni, eða rétt fyrir neðan bæinn á Höllustöðum.Sigrún segist ekki draga lappirnarOrkustofnun hafði dregið til baka tvo virkjunarkosti sem kom í ljós að voru innan Vatnajökulsþjóðgarðs enda má ekki skoða friðlýst svæði samkvæmt lögunum, þegar verkefnisstjórn rammaáætlunar ákvað að skoða ekki þau svæði sem stofnunin hefði lagt til og voru í verndarflokki samkvæmt öðrum áfanga rammaáætlunar. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi umhverfisráðherra benti á að það gerði ferlið að engu ef meta ætti svæði í verndarflokki en lögum samkvæmt á að friðlýsa þau svo fljótt sem kostur er. Hún vildi meina að umhverfisráðherrar núverandi ríkisstjórnar hefðu dregið lappirnar. Sigrún Magnúsdóttir sagði hinsvegar að þetta kæmi úr hörðustu átt: „Ég er búin að vera ráðherra í fjórar vikur og þetta kemur frá henni sem var það í fjögur ár.“ Sigrún segist aldrei draga lappirnar og unnið sé hörðum höndum í umhverfisráðuneytinu.
Tengdar fréttir Vindorkan skal líka metin Þvert á það sem haldið hefur verið fram falla vindorkuver, og aðrir óhefðbundnir orkukostir undir lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). 30. janúar 2015 09:58 Lögfræðingur Orkustofnunar segir að stjórnsýsla verkefnastjórnar rammaáætlunar sé undarleg Verkefnastjórn Rammaáætlunar ætlar ekki að svo stöddu að fjalla um orkukosti sem Orkustofnun lagði fram að eigin frumkvæði og ber við tímaskorti. Lögfræðingur Orkustofnunar segir þetta undarlega stjórnsýslu. 29. janúar 2015 19:15 Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Sjá meira
Vindorkan skal líka metin Þvert á það sem haldið hefur verið fram falla vindorkuver, og aðrir óhefðbundnir orkukostir undir lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). 30. janúar 2015 09:58
Lögfræðingur Orkustofnunar segir að stjórnsýsla verkefnastjórnar rammaáætlunar sé undarleg Verkefnastjórn Rammaáætlunar ætlar ekki að svo stöddu að fjalla um orkukosti sem Orkustofnun lagði fram að eigin frumkvæði og ber við tímaskorti. Lögfræðingur Orkustofnunar segir þetta undarlega stjórnsýslu. 29. janúar 2015 19:15